22. desember 2003 "Hann setti svip á bæinn" Axel Schiöth, skipstjóri, fæddur 22. ágúst 1929
22. desember 2003 Vísir að Dansklúbbi Siglufjarðar varð til fyrir 2 árum þegar læknishjónin Anna og Valþór fóru af stað með dansæfingar fyrir starfsfólk Heilbrigðisstofnunarinnar, svo það gæti tjúttað almennilega á þorrablóti.
Síðar komu inn starfsfólk Sparisjóðs Siglufjarðar, ásamt fleirum. Í dag er í klúbbnum rúmlega 20 manns og alltaf bætist við einn og einn. Dansað er á sunnudagskvöldum á Kaffi Torgi frá klukkan 19.30 til 21. Allir eru velkomnir. Mér var boðið formlega að mæta, - með myndavélina (ekki til að dansa, það er ekki mín deild) og smellti ég nokkrum myndum eins og venjulega. Smelltu HÉR og skoðaðu.
22. desember 2003 Kaffi Torg (Nýja Bíó) hefur sett upp jólasvip sem aldrei fyrr, í höndum nýrra rekstraraðila, það er Ragnheiður Ragnarsdóttir (Didda Ragnars) og Hulda Alfreðsdóttir.
22. desember 2003 Norska olíuskipið KASLA losaði hér í nótt og í morgun 400 tonn af svartolíu. Myndin sýnir er það fór úr höfn um klukkan 11:00 í morgun.
23. desember 2003 "Hann setti svip á bæinn" Jón Kjartansson f.v. bæjarstjóri, fæddur 5. júní 1917
Desember 1976
23. desember 2003 Tilkynning frá Siglfirðingafélaginu í Reykjavík:, ,,,Jólabarnaball Siglfirðingafélagsins verður laugardaginn 27.des. í húsi KFUM við Holtaveg kl. 14,00 ,,,jafnt fyrir börn sem og fullorðna,,gott tækifæri fyrir Siglfirðinga á Reykjavíkursvæðinu að hittast og spjalla yfir kaffibolla, rifja upp gamlar sögur að heiman.
23. desember 2003 Sparisjóður Siglufjarðar: Vegna aukinna umsvifa í fjarvinnslu hefur Sparisjóðurinn ákveðið að leigja neðstu hæðina á Hvanneyri (gömlu Rammaskrifstofuna) starfsemi hefst þar í byrjun janúar.
Þarna verður Lífsval sparisjóðanna skráð, en við munum taka að okkur skráningu fyrir alla sparisjóðina í landinu þrír starfsmenn hafa verið ráðnir vegna þessa
24. desember 2003 "Hann setti svip á bæinn" Sigurður Gunnlaugsson. bæjarritari, fæddur 5. október 1906
24. desember 2003 Tækni og umhverfisnefnd, verðlaunaði að venju fyrir bestu og athygliverðustu "jólaskeytingu" íbúðarhúsa, lóða og fyrirtækja. Fyrir valinu urðu að þessu sinni. Kaffi torg (fyrirtækið) - og hús þeirra hjóna Helgu Óladóttur og Óskars Berg Elefsen. Smelltu HÉR og skoðaðu verðlaunahúsin og fleiri hús, valin (til myndatöku) af mér af handhófi.
24. desember 2003 Í gærkveldi á Þorlákskvöldi, rölti ég á milli verslunarstaða og skaut nokkrum "föstum skotum" með myndavél minni. Ég heimsótti alla þá staði sem opið var á, á milli klukkan 19:30 og 21:00 Ef þú smellir HÉR þá sérðu afraksturinn.
24. desember 2003 Kveðja frá Noregi.: Mig langaði að segja frá því að ég var að halda mína fyrstu myndlistasýningu hérna í Noregi eða í Flekkefirði þar sem við höfum búið síðustu 7½ ár. Ég var með sýninguna í versluninni sem ég og Særún rekum ásamt nuddstofu , það er allt gott af okkur að frétta ef það er í lagi sendi ég jóla mynd af okkur með mömmu og pabba þar sem þau eru í heimsókn hjá okkur, með jóla kveðju Sigrún Halldóra Jóhannsdóttir. h-agnars@online.no (Sigrún, myndin með pabba og mömmu kom ekki, en ég birti þessar semkomu, með kveðjunni.)
25. desember 2003 "Hann setti svip á bæinn" Hjörtur Karlsson loftskeytamaður, fæddur 14. apríl 1926
26. desember 2003 "Hann setti svip á bæinn" Vigfús Guðbrandsson, fæddur 27. maí 1927
27. desember 2003 "Hann setti svip á bæinn" Haraldur Hjálmarsson, fæddur 20. desember 1909
28. desember 2003 "Hann setti svip á bæinn" Sigurgeir Jósepsson, fæddur 21. janúar 1909
28. desember 2003 Þeir hvíla lúin "bein" bílar og menn hjá Norðurfrakt eftir törnina fyrir jólin. Þessi mynd var tekin af bílaflotanum hans (mummmmmma) í gærkveldi, fyrir utan afgreiðslu Norðurfrakt ehf.
28. desember 2003 Aðsent: Sæll félagi Steingrímur og gleðilega hátíð. Þú mátt setja þetta inn sem bréf frá áhugasömum Siglfirðingi.
-- Ábending til bæjaryfirvalda og íþróttaforustu. Mér finnst allt of lítið gert úr því að auglýsa okkar frábæra skíðasvæði og að það sé opið.
Útvarpið tekur allar svona tilkynningar fegins hendi, það eina sem þar að gera er að koma sér í samband við fréttastofu útvarps tímanlega fyrir fréttir.
Þetta á að vera eitt fyrsta verk starfsmanns skíðasvæðis eða forsvarsmanns þess, og við eigum að láta þess alltaf getið að skíðasvæðið sé opið, og lýsa veðri og snjóalögum.
Látum heyrast frá okkur.
e.s. Einnig vantar upplýsingar inn á Sigló.is um viðburði, þar er ekkert að finna. Eigum við ekki bara að fela Steingrími umsjón með þessu líka, síðan hans er alveg frábær og mikið lesin.
n.n.
Hvað varðar þann hluta þessa erindis, sem snertir mig, þá held ég aldeilis, að ég hafi sagt frá og birt myndir frá hinum ýmsu atburðum, þó svo oft hafi brunnið við, að ég frétti fyrst af sumum þeirra, þegar þeim er lokið, - þar sem viðkomandi hafa ekki haft áhuga á, (???) að ég sé þar nálægur, eða láta mig vita.. Og hvað varðar afskipti af www.siglo.is þá eru þessir 6-8 tímar á dag, sem "Lífið á Sigló" tekur af tíma mínum, auk vinnu við Ljósmyndasafnið ofl. alveg nóg fyrir mig, ég er ekkert unglamb lengur. S.K.
28. desember 2003 Þeir voru að ljúka við, þessir garpar að koma fyrir rafljósum á Hvanneyrarskálarbrún og ártalinu í hlíðinni, eins og sumir þeirra hafa unnið við allt frá barnæsku. En þeir eru allir tengdir Skíðafélaginu Skíðaborg þessir piltar. ------
Þeir voru fúsir til að stilla sér upp fyrir mig vegna myndatöku, þarna eru bæði feður og synir í hópnum. Talið frá vinstri, standandi röð: Sigurjón Erlendsson, Egill Rögnvaldsson, Guðmundur Þorgeirsson, Jón Andrjes Hinriksson, Einar Ingvarsson, Snævar Jón Andrésson, Andrés Stefánsson, Mark Duffield. - fremri röð: Stefán Geir Andrésson, Helgi Steinar Andrésson, Skúli Jónasson og Óðinn Freyr Rögnvaldsson.
Þarna eru drengirnir að koma niður Hvanneyðaraskálarhlíð, kófsveittir, þrátt fyrir -6 °C frost. En glaðir í bragði. Það glittir í ártalið 2003 uppi í hlíðinni, - en á miðnætti 2003-2004 breytist það í 2004 - "Ljósastöðin" til hægri.
Og svo var það rúsínan í pylsuendanum, föst venja: -- Ein viskíflaska og 1 kg. af konfekti, sem þurfti að tæma, sem og hefð er fyrir. Þeir fara örugglega létt með það þessir 12 drengir. - Hundurinn fær þó ekkert, en ég fékk einn snafs þegar ég kvaddi.
Og þeir fóru inn á "Ljósastöð" til að slappa af og rabba og ....
Einherji 25. janúar 1947 Á þrettándadagskvöld s.l. gafst á að líta á brún Hvanneyrarskálar - ánægjulega og eftirminnilega sjón.:
Blysum í tugatali hafði verið komið fyrir á skálarbrúninni og niður með vegkantinum sem liggur frá skálinni. Kyndlar þessir loguðu glatt í langa hríð - fólk hópaðist saman á götum úti og dásömuðu dugnað þeirra manna sem hér voru að verki og létu í ljós ánægju sína yfir þeirri tign og fegurð sem þessi blys settu yfir bæinn á þessu kyrrláta vetrarkvöldi. ......
Smelltu á myndina.
29. desember 2003 "Hann setti svip á bæinn" Hannes Ásdal, fæddur 20. janúar 1926
30. desember 2003 "Hann setti svip á bæinn" Jóhannes Sigurðsson, Skarðdal, fæddur 4. júlí 1910
30. desember 2003
Kveðja frá Siglfirðingum í U.S.A.
Smelltu á myndina.
30. desember 2003 Svona til uppfyllingar. Þessi tröppuhandrið ættu að vera mörgum kunnugleg.
30. desember 2003 Flugeldasala Kiwanisklúbbsins Skjaldar annarsvegar og sala Björgunarsveitarinnar Strákar hinsvegar er á fullu nú fyrir áramótin og ber söluaðilum saman um að salan verði sennilega meiri nú en fyrir ári.
Kiwanis félagarnir á myndinni hér til hliðar, Sigurður Ólafsson, Ágúst Stefánsson sem er að lýsa sölunni eins og laxveiði (hann var að draga fangið saman þegar ég smellti, hann var nærri búinn að gefa Salla utanundir með armtreyjunni) - og Salmann Kristjánsson.
Smelltu á myndina til að skoða fleiri myndir frá flugeldasölu.
31. desember 2003 "Hann setti svip á bæinn"
Sigurjón Sæmundsson prentari og f.v. bæjarstjóri, fæddur 5. maí 1912
31. desember 2003 Farið varlega með eldinn nú um áramótin.Kristinn Georgsson slökkviliðsstjóri gaf fyrirmæli um að kveikt væri þarna í vegna æfinga slökkviliðsins, en rífa átti húsið. Nú um áramótin lætur Kristinn af störfum sem slökkviliðsstjóri 70 ára að aldri, eftir farsælt og árangursríkt margra áratuga starf sem slökkviliðsstjóri. Hafðu þökk fyrir Kiddi. -
Nú um áramótin tekur við annar garpur sem slökkviliðsstjóri sem vafalaust mun sinna starfi sínu af sömu samviskusemi og sá fráfarandi, en það er Ámundi Gunnarsson vélsmiður.
Vonandi þarf hann ekki að glíma við svona elda í framtíðinni - en það er undir okkur íbúunum komið. Förum varlega með eldinn. --- Til hamingju með starfið Ámi. Sigurður Jakobsson heitinn átti húsið sem þarna brennur, það er Dalabær, norðast á Siglufirði.
31. desember 2003 (13:00) Hin hefðbundna flugeldasýning sem Skíðafélagið sér um hefst klukkan 21:00 í kvöld, ef skyggni verður betra en nú í hádeginu, annars verður skotunum frestað til betri tíma. Það eru margir aðilar sem koma að þessari flugeldasýningu, Björgunarsveitin, bæjaryfirvöld og hin ýmsu félagasamtök.
Munið, að það verður ekki skotið upp, kl. 21:00 - nema skyggni verði betra en í hádeginu.