Dúfurnar okkar Aðsent efni, samkvæmt minni beiðni.
6.október Síðustu dúfurnar á Íslandi?
Þessar dúfur eru jafnmiklir Siglfirðingar eins og þú og ég - eða krummarnir og allir hinir fuglarnir sem hafa valið fjörðinn sem heimkynni sín. Margir gera sér grein fyrir þessu og þónokkrir góðhjartaðir bæjarbúar færa þeim brauð daglega.
Ekki er vitað hvenær þær komu fyrst hingað en líklegt er að þær hafi verið fluttar á staðinn snemma á 20. öld til ræktunar eins og gerðist í flestum þorpum og bæjum. Nú eru þær villtar en þurfa húsaskjól og eru háðar matargjöfum.
Fyrir allmörgum árum var verið að setja upp eitthvert leikrit hjá Leikfélagi Akureyrar. Einn "leikaranna" var dúfa. Þegar til átti að taka fannst engin slíkur fugl á Akureyri. Og ekki heldur í öðrum bæjum á Norðurlandi - nema á Siglufirði! Þannig að í það skiptið fór einn Siglfirðingur með hlutverk á fjölum gamla samkomuhússins á Akureyri.
Eins og logi yfir akur
Við athugun kom það í ljós að Árni nokkur Logi eigandi fyrirtækisins "Meindýravarnir Íslands ehf" hafði ekið um landið á jeppa hlöðnum byssum, gildrum og hverskyns eiturefnum og samið við sveitarstjóra um útrýmingu á öllum meindýrum, þ.m.t dúfum. Aðeins einn bæjarstjóri samþykkti ekki útrýmingaráætlunina - það var Björn Valdimarsson á Siglufirði - þökk sé honum!
Bæjarprýði
Þótt sumir amist við þessum blessaða fiðurfénaði og hafi trúað áróðrinum um að þetta séu "rottur himinsins" þá er full ástæða til að dúfurnar njóti áfram verndar okkar.
Nokkrar málsbætur: Fáir fuglar éta eins "hreint" fæði, þ.e. brauð og kornmeti. Þær eru fallegar í augum margra og börnum þykir yfirleitt vænt um þær. Dúfur eru eitt helsta torgtákn margar borga útí heimi - og við sem erum svo stolt af torginu okkar - eina bæjartorgi landsins! - viljumnáttúrlega að þeim sé gefið á torginu og þá yrði Siglufjörður með ennalþjóðlegra yfirbragði en áður. ---- Ö.K.