Fréttir 18.-25 ágúst 2003
18. ágúst "Hann setti svip á bæinn" Björn Jónasson keyrari, fæddur 23. júní 1889-- dáinn 19. febrúar1966
18. ágúst. Stálvík SI 1 var í gærkveldi að taka "af snúning" (ágiskun) togvíra sinna og dró þá á eftir sér spöl út fjörðinn í kvöldsólinni og snéri síðan aftur inn að bryggju þegar vírarnir höfðu verið dregnir inn. Viggó SI er á leiðinni inn fjörðinn.
18. ágúst. "Smábátarnir" hafa að undanförnu verið að fiska allvel á línu og færi, sem dæmi: Gunnar afi SH 474 lagði línu í gærmorgun 34 bala og kom inn í gærkveldi um 11 leitið með alls 8.5 tonn af vænum fiski, þar af 6.5 tonn af ýsu. Mikið ber á aðkomubátum hér um þessar mundir, þeir láta beita línuna á heimaslóð fyrir sunnan og vestan, keyra henni norður á Siglufjörð og aflanum síðan á markað fyrir sunnan. Örn G.K 62 3515 frá Sandgerði, hann var að koma í land í morgun eftir að hafa lagt línuna sína. Heimabátarnir hafa einnig aflað vel, en eru að verða búnir með kóda sinn, sumir raunar búnir af því. Þá hefur mikið borið á ýsu við bryggjurnar og á kvöldin "sýður" víða í höfninni þegar smáufsinn er að vaða. Mikið líf í sjónum um þessar mundir.
18. ágúst 14:00 Kampakátar pæjur. Það lá vel á þessum krökkum sem voru að kæla sig í tjörninni fyrir sunnan Stórabola í dag, um 2 leitið í dag. Fleiri myndir af busluganginum hér á Kampakátar
18. ágúst 14:24 Michael Ernst heitir hann þessi þýski hjólreiðakappi sem var þarna kófsveittur að koma upp í háskarð frá Siglufirði, en hann hjólaði upp alla leið þrátt fyrir brattann. Hann hafði komið í bæinn í gegn um göngin, dvalið eina nótt á Sigló og haldi síðan á brattann. Hann sagðist hafa skoðað Síldarminjasafnið og skoðað sig um í bænum og höfnina. - Hann var ánægður með allt sem fyrir augun bar. Hann sagðist hafa flúið hitana heima fyrir og fannst enn fullheitt uppi í há skarði þar sem hitinn var 22 °C gráður og logn klukkan 14:30 í dag.
18. ágúst Bláberjalyng. Það er ekki mjög áhugavert að fara til berja víða í hinum hefðbundnu berjalöndum Siglfirðinga. Lítið er um ber víða og berjalyng víða fölnað eins og komið væri haust . Nokkrar kenningar eru uppi um hvað veldur, sumir telja fiðrildalirfu valda þessu og enn aðrir telja að frost sem kom eftir hitabylgjuna í vor hafa drepið lyngið. Ekki veit ég hvað þetta kvikindi heitir sem meðfylgjandi mynd sýnir, Fleiri myndir af ástandi berjalandsins vestan við Siglufjarðarskarð, koma í ljós ef þú smellir á Bláberjalyng.
18. ágúst Orðsending - nú er búið að uppgötva mjög jákvætt við hina "vammlausu Fljótamenn" sem hér hafa verið iðnir við að skemma gróður og angra íbúana. Þetta eru fyrirtaks hraðahindranir í bænum, við viljum ekki skemma bílana okkar og hægjum því á kerrunum okkar og stoppum þar til þeim þóknast að færa sig. Það verða engir árekstrar á milli bifreiða eða manna á meðan. Það má ekki reka þær, það má ekki skjóta þær, það má ekki skera þær og heldur ekki keyra á þær, því þá þarftu bæði að borga skemmdina á bílnum þínum og borga bóndanum. (vonandi, að frádregnum sláturkostnaði) Keyrum varlega, þær gætu birst þér að óvörum, þær leynast allstaðar.
19. ágúst Ég biðst velvirðingar á því að síða mín lá niðri um smátíma, sitt hvoru megin við miðnætti síðastliðið. Ástæðan var að sú "bandvídd" sem síðu minni var ætlað, "tæmdist" vegna meiri fjölda heimsókna en plássið sem ég hef, gerði ráð fyrir.
Ég hafði samband við miðlara minn strax er ég vissi af þessu, (tölvupóst fór að rigna inn til mín, til að láta mig vita) sem kippti þessu í lag. --- Svarið er hér:
Hello Steingrimur, Your account has been upgraded to v4.0 hosting package with 25 gigs bandwidth per month. Jarrod.
19. ágúst Sigurður Kristjánsson, kambi. "Hann setti svip á bæinn" fæddur 14. desember 1924 - dáinn 19. mars 1987
19. ágúst Júlía GK 400 Þessi bátur ásamt eiganda sínum og fjölskyldu hans er að flytja til Siglufjarðar. Það eru hjónin Reynir Karlsson og Júlía Óladóttir ásamt börnum, en þau hafa búið í Sandgerði undanfarin ár.
19. ágúst 14:50 Bátahúsið. Fyrsta "sperran" var hífuð upp og komið fyrir, í dag í væntanlegu húsi "Berg hf" er að byggja norðan við Síldarminjasafnið, á vegum safnsins.
20. ágúst - Hinn skæði "póst" vírus sem herjað hefur landsmenn frá í gærmorgun hefur gert mörgum skaða - og Siglfirðingar hafa ekki allir sloppið heldur.
Vitað er um nokkra Siglfirðinga sem urðu fyrir skaða tengdum vírusnum.
Víruspósti rigndi yfir tölvurnar, í sumum tilfellum svo hundruðum skipti, einnig þrátt fyrir að viðkomandi hafi haft fullkomnustu vírusvarnir og eldveggi.
www.simnet.is netmiðillinn gat ekki heldur komið í veg fyrir að viðskiptavinir hans yrðu fyrir barðinu á vírusnum.
Ég slapp heldur ekki og af hans orsökum hrundi nettengingin mín um 3 leitið í gær og er ekki komin í lag (11:35 í dag) þrátt fyrir tilraunir tæknimanns.
Gott ráð meðan þetta ástand varir, er að opna ekki póstforritin, fara heldur á netið og opna póstinn þar hjá viðkomandi miðli, td www.simnet.is osfv.
Ég gerði það á annarri tölvu í morgun og henti þar út á annað hundrað póstsendingum sem gera má ráð fyrir að hafi verið sýktar, jafnvel póstur "frá" þekktum netföngum eins og siglo@siglo.is - en lesmál þar að hluta var með enskum texta, sem ekki átti þar heima.
20. ágúst Saltsýruleki Alvarlegur saltsýruleki kom upp eftir að margra tonna saltsýru tankar höfðu verið fluttir frá hafnarsvæðinu að húsvegg Primex hf. Slökkviliðið og lögregla. var kallað út í öryggisskyni, en starfsmenn, umboðsaðila og Primex, hafði áður tekist að stinga tréfleyg í fingurstórt gat sem dottið hafði á tankinn (tæring) En þar sem gera mátti ráð fyrir að sýran yrði fljót að éta timbrið upp, var farið í það að tæma tankinn eins fljótt og auðið væri. Enginn skaði varð, utan nokkra lítra. sem runnu vel útþynntir vatni, í niðurfall til sjávar. Smelltu á tengilinn Saltsýra til að sjæa fleiri myndir
21. ágúst Ferð mín til Akureyrar, tók lengri tíma en ég gerði ráð fyrir, þar sem vél mín var tæpa 5 tíma á verkstæði í stað 1 klukkutíma eins og mér hafði verið gefið von um, en vandamálið reyndist tæknimönnum erfiðara en þeir áttu von á. Og ekki bætti um betur, þegar heim kom. Vandamálið var aðeins leyst að hluta, en yfirsést hafði að breyta svokölluðum VP1 tölum í PVC töflu, sem stillt var á IDSN tengingu í stað ADSL - en vinur minn Júlíus, þekkti vandamálið og leysti það, og ég komst í samband.
Orðsending frá í gær = Því miður, þá er nettenging mín enn óvirk, af völdum VÍRUS - og þarf ég að gera mér ferð á morgun fimmtudag, inn á Akureyri með vél mína. Þessar línur vann ég á óhefðbundinn og mjög seinlegan hátt frá CD diski og tölvunni í Rafbæ. Sjáumst ! SK
21. ágúst "Hann setti svip á bæinn" Steingrímur Eyfjörð Einarsson, sjúkrahúslæknir. Fæddur 19. maí 1894 -- dáinn 29. júlí 1941
21. ágúst .
Síða mín Lífið á Sigló, verður í fríi frá uppfærslum til mánudags 25. ágúst, vegna fjarveru minnar úr bænum, en ég unglingurinn, ætla að slást í för eldriborgara á Siglufirði, í 3ja daga ferð, vestur á Snæfellsnes - Sjáumst hress, að því loknu.
25. ágúst Þá er ég kominn til starfa aftur eftir langa helgi á Snæfellsnesinu. Sveinn Þorsteinsson tók nokkrar ljósmundir fyrir mig á meðan ég var í burtu, og myndirnar sem þú sérð með því að smella tengilinn: Myndir Svenna, færir þig til þeirra, en þetta er um myndir af Kára Jóns og hans mönnum við vinnu við Gránugötuna, og starfsmenn Berg hf við vinnu, við bátahúsið fyrir Síldarminjasafnið.
21. ágúst "Hann setti svip á bæinn" Steingrímur Eyfjörð Einarsson, sjúkrahúslæknir. Fæddur 19. maí 1894 -- dáinn 29. júlí 1941
25. ágúst. Ferðin til Snæfellisnes með eldra fólkinu á Siglufirði gekk vel og var öllum til ánægju. Viðkomandi mynd er tekin af Snæfellsjökli, við sólsetur þann 22. Fleiri myndir eru HÉRNA "Skýrsla"fararstjóra"
25. ágúst. Sprengja, fannst af göngugarpi er var á göngu vestan við Hafnarhyrnu í gær í um 600 metra hæð, en það var Guðmundur Lárusson rafvélameistari sem fann sprengjuna, sem að öllum líkindum bresk æfingarsprengja frá því á stríðsárunum og talin stórhættuleg. Menn frá landhelgisgæslunni, þar á meðal Sigurður Ásgrímsson (Siglfirðingur) eru á leið á vettvang til að skoða málið. Guðmundur var vel útbúinn til fjallgöngu og var meðal annars með staðsetningartæki sem losar hann við að fara með sprengjusérfræðingunum og vísa frekar á staðinn, staðsetningartölur hans nægja. Ljósmynd: Guðmundur Lárusson.
25. ágúst. 10:54 Malbikun hófst í morgun á Tjarnargötu frá Hafnarbryggju. Og verður haldið norður götuna og síða upp Gránugötu og sér þá fyrir endann á þeim tilfæringum og óþægindum sem verið hafa í sumar vegna þessara framkvæmda. En Siglfirðingar fá að launum þægilegri Gránu- og Tjarnargötu til að aka eftir.
25. ágúst. 10:54 Stálvík og Múlaberg voru að landa rækju í morgun við Óskarsbryggju. - Þeir eru vanir að landa við Ingvarsbryggju (togarabryggjuna), en sennilega eru það malbikunarundirbúningur og framkvæmdir sem valda því að þeim er beint á Óskarsbryggju að þessu sinni.