24. nóvember 2003 "Hann setti svip á bæinn" Þórður Jónsson símvirki, fæddur 29. september 1909
24. nóvember 2003 Biluð kaldavatnslögn við Túngötu. Þarna eru bæjarstarfsmenn að fylgjast með dælingu úr holu þeirri er þeir hafa gert umhverfis vatnslögnina svo viðgerð geti hafist. Þetta eru þeir Jón Ásgeirsson og Hörður Hjálmarsson. Búast má við vatnsleysi í nálægu hverfi í nokkra stund.
24. nóvember 2003 Flóð í neðri hæðum húsa ! Stórstreymt var í nótt og í morgun við Siglufjörð og sumstaðar náði flóðið að smjúga upp um niðurföll, inn í kjallara og neðri hæðir sem standa lágt. Það flæddi víðar Smelltu HÉR til að skoða
24. nóvember 2003 Verkið við endurnýjun hluta bátabryggjunnar gengur vel í blíðviðrinu, eins og sjá má á þessari mynd.
25. nóvember 2003 "Hún setti svip á bæinn, og gerir enn" Gunndóra Jóhannsdóttir, fædd 29. janúar 1919
Haförninn í hafísnum norður af Melrakkasléttu árið 1968
25. nóvember 2003 Jólin "nálgast" Ef marka má umfang bæjarstarfsmanna við að skreyta bæinn jólaljósum og glingri í morgun, þá eru jólin á "næstu" grösum. Þarna eru starfsmennirnir að hengja jólaskreytingu þvert yfir Aðalgötuna á milli "Apóteksins og Norska sjómannaheimilisins," eins þessi hús hétu hér áður fyrr, en nú Aðalbakarí og Tónlistaskólinn.
25. nóvember 2003 Ég fékk eftirfarandi skilaboð kl. 12:20 "Mér datt í hug hvort þú getir ekki sett inn áskorun á bæjarbúa og þ.m.t. Lionsklúbbinn um það að strax í byrjun desember verði hægt að setja upp ljósakrossa í kirkjugörðunum báðum, og lýsa þar með upp skammdegið og skreyta garðana miklu fyrr en verið hefur."
Út er komin bókin "Af norskum rótum" sem fjallar um gömul norskættuð hús á Íslandi.
Verkið skiptist í 10 kafla þar sem fyrst er fjallað almennt um sögu evrópskar húsagerðar og hin sérstöku norsku áhrif hérlendis. Er þar bæði um að ræða fjölda glæsihúsa sem flutt voru tilbúin frá Noregi og einnig það að hús væru smíðuð undir norskum áhrifum ljóst eða leynt.
Þá koma 5 kaflar sem eru tileinkaðir þeim stöðum sem helst bera svip þessara húsagerða og áhrifa: Reykjavík, Seyðisfjörður, Akureyri, Siglufjörður og Ísafjörður. Höfundar þessara kafla eru búsettir í viðkomandi bæjum. Sá sem skrifar Siglufjarðarþáttinn er Örlygur Kristfinnsson safnstjóri Síldarminjasafnsins.
Af norskum rótum er ríkulega skreytt myndum og hin glæsilegasta í allri uppsetningu og frágangi. Útgefandi er Mál og menning. Bókin fæst í Aðalbúðinni og kostar aðeins 5990 kr.
25. nóvember 2003 GSM símasamband orðið gott. Eins og sagt var frá hér í fyrri viku, þá unnu starfsmenn símans að því að setja upp nýtt loftnet fyrir GSM kerfið sem þjónar Siglufirði. það er nú komið í gagnið- og ég þarf ekki lengur að hlaupa út á svalir til að ansa í síma minn ef og þegar ég sit við tölvu mína og væntanlega aðrir ekki að leita svæðis þar sem samband væri viðunnandi (innandyra). Samband mun einnig batna á sjónum út af Siglufirði, en drægi í sjónlínu mun vera um 30 kílómetrar, sagði starfsmaður mér. Myndin er af loftnetsbúnaði, uppi í stóra strompi Síldarvinnslunnar.
26. nóvember 2003 "Hún setti svip á bæinn" Sigríður Guðmundsdóttir, fædd 7. apríl 1913
26. nóvember 2003 Því miður, þá er þetta gömul ljósmynd. En ekki væri slæmt ef að Andersen fengi að svitna af áhyggjum yfir því hvar hann ætti að koma fyrir allri þeirri loðnu, ef skipin væru nú í Siglufjarðarhöfn fullfermd og biðu eftir löndun.Vonandi fær hann tækifæri sem fyrst. Ég vona hið besta.
26. nóvember 2003 Þessi mynd var tekin frá Hólsbrúnni í gær þegar stærsti straumur var kl 11:08 Álfhóll nær umflotinn, speglast í logndauðum sjónum - og vart hægt að sjá hvort Hólsáin rann "upp eða niður", því sjórinn náði langt upp eftir ánni.
26. nóvember 2003 „Landlega á Siglufirði“ í gær. Nokkur síldarskip bíða þess að gefi til að sigla á ný mið í bátahúsinu. Með vorinu verða aðstæður vonandi orðnar þannig í forskála þessa mikla húss að skipslíkönunum ásamt mörgu öðru verði komið þar til sýningar.Líkönin eru á meðan geymd í bráðabirgðaskrifstofu safnsins í Ráðhúsinu.
26. nóvember 2003 Smá él voru í morgun, sem náði til að lita umhverfið hvítri föl. Þarna eru bæjarstarfsmenn að koma fyrir hinu árlega jólatré á Torginu.
27. nóvember 2003 "Hann setti svip á bæinn" Herbert Sigfússon málarameistari, fæddur 18. maí 1907
27. nóvember 2003 Næturmynd. Þessi mynd var tekin 9. september síðastliðinn klukkan 23:25. Þetta er að sjálfsögðu ekki sólin sem sendir þennan bjarma með stjörnukrónu, heldur er þetta tunglið sjálft og það glittir í eina og eina stjörnu. Myndin er tekin á hraða 3 sek og ljósop f.8 400 ASA
"27. nóvember 2003" Löndun og bræðsla síldar hjá Síldarverksmiðjum ríkisins 1960
27. nóvember 2003 Vel alinn þorskur. Þarna er verið að gera að þorskinum hans "Sidda" Sigtryggs Kristjánssonar. Þorskurinn hefur verið hefur í flotkví úti á firði í sumar og beðið daglega eftir að Siddi komi til að fæða þá. Það sést á fiskinum að hann hefur notið ríkulegrar fæðu og nú er komið að skuldadögum, þeirra smákríla 25-50 sentímetra, sem urðu af golþorskum í kvínni, því nú er þeim slátrað. Siddi er með tvær kvíar og áætlar hann að upp úr þessari sem unnið var við nú, kæmu 8-10 tonn af þorski. Smelltu á myndina til að sjá meira.
27. nóvember 2003 Rækjuskel og Primex. Þessi bílstjóri heitir Gunnar Þór og kemur reglulega með um 10 tonn af rækjuskel frá Skagaströnd til Primex á Siglufirði. En alls hafa komið 2-3 bílar á dag með rækjuskel til Primex upp á síðkastið. Mest hafa komið 6 bílar á dag frá rækjuverksmiðjum á Akureyri, Hvammstanga, Sauðárkrók, Blöndudós, Skagaströnd, Hólmavík og Húsavík.
Frá tveim síðast nefndu staða hefur ekki komið undanfarið rækjuskel vegna þess að ekki náðist samkomulag við flutningsaðila, en um langan veg er að fara og flutningsaðilinn þarf auðvitað að fá eitthvað í sinn hlut til að greiða kostnað, en skattmann fær sinn hlut og þarf ekki að hafa áhyggjur af því hvort flutningurinn beri sig, skattmann fær sitt.
Og ekki kemur samningsaðstaðan til með að batna ef nýjustu skatthækkunar tillögur ríkisstjórnarinnar á bifreiðagjöldum ná fram að ganga. En rækjuskel frá Hólmavík og Húsavík er nú urðuð í stað þess að skapa verðmæti.
28. nóvember 2003 "Hann setti svip á bæinn" Pétur Magnússon verkamaður, fæddur 19. apríl 1920
28. nóvember 2003 Athygliverð staðreynd. Það vakti furðu mína er mér barst bók í hendur, bók sem segir sögu kommúnistahreyfingarinnar á Íslandi 1921-1934. Það var ekki efni bókarinnar, sem vakti athygli mína, heldur útgáfudagur hennar sem er árið 1979 - og lógóið á kápu bókarinnar sem vakti athygli mína. þetta sem þið sjáið hér á myndinni. Bókaútgáfa menningarsjóðs gaf bókina út.
Þó merkið sé ekki nákvæmlega eins og það lógó SR-MJÖL sem við horfum á daglega (ennþá) á þaki Ákavítis, þá er ekki hægt að komast hjá því að það minnir okkur á SR-MJÖL HF "sáluga." - Hvað er skylt með kommúnistaflokknum dauða,- og SR-MJÖL HF., sem nú starfar að vísu áfram undir öðrum formerkjum? - Ef til vill er hönnuður beggja merkjanna sá sami?
28. nóvember 2003 Athygliverðar spurninga --- og svörin enn athygliverðari: http://www.althingi.is/altext/130/s/0464.html
29. nóvember "Hann setti svip á bæinn" Þormóður Stefánsson bifreiðastjóri, fæddur 9. ágúst 1927
29. nóvember 2003 Kvenfélagsið Von, hélt sinn árlega basar í Suðurgötu seinnipartinn í gær. Þar var á boðstólnum að vanda, útskorið laufabrauð, kleinur ofl. góðgæti, auk þess sem happdrætti fór fram á staðnum. Ég tók þar nokkrar mynir, smelltu HÉR.
29. nóvember 2003 MAGNÚSARMÓT 2003. Í tilefni af 50. árstíðar Magnúsar Sævars Viðarssonar munu vinir og skólafélagar Magnúsar heitins, taka þátt í mótinu í ár. Mótið hófst klukkan 19:30 á gærkveldi og líkur seinnipartinn í dag.
Keppt er í einliða og tvíliðaleik. Ég mætti á mótið og tók slatta af ljósmyndum við þetta tækifæri.
Smelltu á myndina til að skoða mótskrá og úrslit.
Mótinu lauk í kvöld um kl. 17:30 með verðlaunaafhendingu. Síðar í kvöld munu mótshaldarar, þátttakendur ofl. borða saman kvöldverð. Smelltu HÉR til að skoða myndasyrpu
29. nóvember 2003 Jólatré frá Herning í Danmörku. Jólatré eins og árlega kemur hingað sem gjöf frá vinabæ okkar Herning í Danmörku, var afhent og kveikt á því kl. rúmlega 17:00 í dag við hátíðlega viðhöfn. Myndir frá athöfninni sérðu með því að smella HÉR
30. nóvember 2003 "Hann setti svip á bæinn" Gottskálk Rögnvaldsson, fæddur 11. september 1927
SR árið 1960