8. desember 2003 " Hann setti svip á bæinn, og gerir enn" Þórarinn Vilbergsson byggingameistari, fæddur 11. júlí 1919
8. desember 2003 Jólafundur Félags eldri borgara var haldinn í Skálahlíð í gærkveldi. Þar var á boðstólnum kaffi með tertum og fleiru góðgæti. - Ef þessu heldur áfram hvað mig varðar, að mæta á hverja átveisluna á fætur annarri, þá verð ég að svelta um jólin sjálf, því vart er ég búinn að jafna mig eftir átið á árshátíð Heilsugæslu-starfsfólks á Kaffi torg í fyrrakvöld. Þessi fundur fór fram með hefðbundnum hætti.
Myndin af veggteppinu hér til hliðar gerði, og gaf , "Skálahlíð" í tilefni af komandi jólum, Aðalheiður Rögnvaldsdóttir. -- Smelltu HÉR og skoðaðu fleiri myndir.
Árið 1975 var slæmt ár hjá rakara bæjarins (eða var hann búinn að loka þá, eða hárgreiðsludömurnar teknar við þessari þjónustu) Þessir hárprúðu menn og félagar þeirra sem létu klippa sig reglulega, voru Stúaraliðið "alræmda" sem starfaði hjá Þormóði Ramma hf.
Allir eru þeir (held ég) eru búnir að láta klippa lubbann í dag, sumir ef til vill komnir með skalla. En svona var tískan í þá daga. Nöfn þessara drengja eru, talin frá vinstri: Björgvin Árnason,- Leonardo Passaro, - man ekki nafn,- Þórhallur Gestsson, - Sveinn Björnsson verkstjóri, - vantar nafn, - Eyþór Þorsteinsson, - Sigurður Friðriksson sundlaugarforstjóri, - Stefán Benediktsson, - Guðni Sveinsson lögregluvarðstjóri - og Ómar Geirsson. Sendið mér nöfn þeirra sem vantar.
8. desember 2003 Siglfirðingar, ávalt Siglfirðingar, Þetta eru systkinin Lilja Pálsdóttir, Magnús Pálsson og Sigríður Pálsdóttir. Þau hafi í sumar unnið því að gera upp, húseignina Mjóstræti 2 "Pálshús," þar sem þau ólust upp í faðmi foreldra sinna Páls Ásgrímssonar og Ingibjargar Sveinsdóttur. Magnús sendi mér nokkrar myndir er teknar voru um helgina er þau systkin komu saman heima hjá Sigríði til árlegrar athafna, sem er bakstur laufabrauðs. Smelltu HÉR.
8. desember 2003 Afmæliskveðja til Þórný ömmu: Með kveðju frá Álasundi til elsku mömmu okkar ömmu og langömmu með daginn í dag.Hilsen -- Sara er á á myndinni. Kærar kveðjur Jens og fjölskylda., Ragnar og fjölskylda., Hallfríður og fjölskylda.
9. desember 2003 "Hann setti svip á bæinn" Halldór Kristinsson héraðslæknir, fæddur 20. ágúst 1889
9. desember 2003 Kveðja frá Noregi, til vina og vandamanna: Góða kvöldið góðir Siglfirðingar í kvöld (8.des) var haldin messa fyrir Íslendinga i Álasundi. Nokkuð margir Siglfirðingar voru þar. Prestur var Hannes Björnsson. Eins og sjá má á annarri myndinni voru mörg börn þar á hinni eru þeir bræður Jens og Ragnar Mikaelssynir með prestinn á milli sín. Hér er 10 stiga hiti og sunnan vindur og engin snjór. Kveðjur frá MIKKONUM i Álasundi.
9. desember 2003 Mjölútskipun 1978 - Björn Jónsson, Jón Aðalsteinn Hinriksson, Þórhallur J Benediktsson, Guðmundur Þorgeirsson, Ómar Geirsson og ....sést ekki.
10. desember 2003 "Hann setti svip á bæinn" Ingimar Þorláksson bakarameistari, fæddur 23. júní 1924
10. desember 2003 Mjölútskipun 1978 - Björn Frímannsson, Björn Ólsen og Ragnar Helgason
10. desember 2003 Verslunina SR-Byggingavörur verður opnuð í dag kl. 16:00. - SR-Vélaverkstæði mun reka verslunina alfarið á sína ábyrgð. Húsnæðið er mjög rúmgott og mikið vöruúrval, jafnvel fjölbreyttara en almennt í byggingavöruverslunum. Þeir hafa og gert víðtæka og hagkvæma samninga við nokkra byrgja til að tryggja sem lægst vöruverð. -- Ég mæti þar að sjálfsögðu og tek þar nokkrar myndir sem koma hér síðar, sennilega í kvöld.
10. desember 2003 Víkingur AK 100 og Siku GR 15-1 Þegar ég vaknaði í morgun og leit út um gluggann, hélt ég að komin væri loðna er ég sá þessi tvö glæsilegu og velkomin skip við löndunarbryggju Síldarvinnslunnar. Því miður, þá voru skipin ekki komin með loðnu, heldur komu hingað vegna brælu og til að taka olíu og kost, ásamt því að lofa mannskapnum að slappa af. Skipin hafa að undanförnu verið að leita af loðnu fyrir norðurlandi. Lítið hefur fundist til þessa, aðeins smá hrafl norðan við Kolbeinsey.
10. desember 2003 Verslunin SR-Byggingavörur var opnuð með "promp og prakt" klukka 16:00 - eins og getið var um hér í morgun. (ofarr á síðunni) Mikill fjöldi fólks úr öllum stéttum bæjarins mættu á staðinn og á tímabili var nálægt örtröð. Allt fór þó vel fram eins og vænta mátti. Ríkulegar veitingar var gestum boðið - og talsverð verslun einnig . Fólk kom bæði til að skoða, njóta veitinga og versla. Smelltu HÉR til að skoða myndir.
11. desember 2003 "Hann setti svip á bæinn" Theodór Árnason keyrari, fæddur 23 maí 1896
11. desember 2003 Ein frá sumrinu 1961. Kristinn Þorkelsson, Eiríkur Þóroddsson, Björn Ólsen og Júlíus Bjarni Ólafsson, starfsmenn S.R.V. 1961
11. desember 2003 Frétta tilkynning: Söfnun á mjólkurfernum, dagblöðum og öðrum úrgangi til endurvinnslu. Á síðustu árum hefur orðið mikil þróun í að endurvinna það sem til fellur frá heimilum og fyrirtækjum. Eftir að lög um úrvinnslugjald og þegar úrvinnslusjóður var settur á laggirnar, var farið að leggja gjald á ákveðna vöruflokka með það í huga að nota þá fjármuni til að kosta flutning og endurvinnslu á þeim. (myndin er af gám staðsettum á Bensínstöðvarsvæði, smelltu HÉR til að lesa meira.)
11. desember 2003 SAMKAUP HF - Sem samanstendur af verslunarkeðjunni, Samkaup - Nettó - Úrval - Sparkaup - Strax og Kasko, efndu seinnipartinn í dag til kynningar upp á "Bíó Café" á einum þætti starfsemi sinnar, sem alls er óháð verslun, en þeir eru nú á ferðinni um landsbyggðina, til að deila úr 2,4 miljónum króna sjóði til menningarmála ofl. Hér var kominn Skúli Skúlason frá Samkaup og verslunarstjórinn hér hjá Úrval til að veita úr þessum sjóði 3 x kr. 200 þúsund til þriggja aðila á Siglufirði; Kvenfélagsins Von, Kvenfélags Sjúkrahússins og Herhússins á Siglufirði. Ekki þarf að kynna frekar starfsemi þessara aðila, kvenfélaganna og Herhússins, menningarsetur listamanna og ekki er að efa að þessum peningum verður vel varið. Myndin hér sýnir Skúla Skúlason frá Samkaup, formenn stjórna; Brynja Baldursdóttir Herhúsinu, Magðalena Hallsdóttir Kvenfélag Sjúkrahússins, Anna Snorradóttir Kvenfélaginu Von og Leonardo Passaro verslunarstjóra Úrval á Siglufirði.
Smelltu á myndina til að sjá fleiri myndir.
12. desember 2003 "Hann setti svip á bæinn" Ragna Jóhannesson skattstjóri, fæddur 2 júní 1911
12. desember 2003 Hvað er að ske í þessu þjóðfélagi okkar? Vegna síðustu frétta af eigingirni alþingismanna, sem ætla sér óhóflega hækkun á launum “sérréttindahópa” innan alþingis. Þá datt mér í hug þau orð sem ég lét falla í eyru eins alþingismanns fyrir nokkrum árum eftir fund í félagi Sjálfstæðismanna á Sigló, eftir orðarimmu okkar á milli vegna yfirlýsingar sem hann lét falla í fjölmiðli og mér mislíkaði þar sem ég vissi að hún var röng. Steingrímur. Ef þú villt lesa meira, smelltu þá HÉRMynd stolin af netinu
12. desember 2003 Olíuskipið Keilir kom hér um miðjan dag í gær með olíu og fór aftur seinni partinn sama dag.
12. desember 2003 Síldarminjasafnið. - Þarna eru Sveinn Þorsteinsson og Örlygur Kristfinnsson að hefja niðursögun gamals nótabáts. En meiningin er að saga af honum sitt hvorn endann til nota sem einhverskonar "skúlptúr", en restin er ætluð til brennu um áramótin.
12. desember 2003 Ég vil benda á þann möguleika, að hægt er að senda frá www.siglo.is jólakort frá síðunni, og senda til vina og vandamanna um jólin. Ath: 2015: Nefnt veffang var á þessum tíma 2003, í eigur Siglufjarðarkaupstaðar
13. desember 2003 "Hann setti svip á bæinn" Sigurður Jónsson framkvæmdastjóri, fæddur 11. desember 1913
13. desember 2003 Vinnustofa Arnfinnu Björnsdóttur. Þar inni kennir ýmissa grasa, tilbúningur allskonar listmuna, stórra og smárra, úr allskonar efnum, náttúrlegum svo sem steinum, afgöngum ýmiskonar, tuskuafgöngum of. Líttu inn með því að smella HÉR.
13. desember 2003 Honum var stolið í nótt. Framið var innbrot í nótt, skemmdir unnar og uppstoppaður refur með rjúpu í kjaftinum var stolið. Þessi refur ásamt fleiru álíka, hafði verið fengið að láni hjá Grunnskólanum til nota í Upplýsingamiðstöð bæjarins, - sem að vísu er aðeins opin að sumri til. Ég tók nokkrar myndir á vettvangi, smelltu. 13. desember 2003 Refurinn er fundinn heill á húfi og þjófurinn einnig, en hann reyndist vera skipverji á einu af 6-8 skipum sem hér liggja við bryggjur. Þeir voru snöggir að upplýsa þetta mál, lögregluþjónarnir á Siglufirði.
Upplýsingamiðstöð Siglufjarðar er til húsa i gamla Söluturninum, við Aðalgötu.
Allir sem hugsanlega geta gefið upplýsingar um innbrotið og eða hvar "rebbi" er nú, láti lögregluna vita, því eins og fyrr segir þá var hann fenginn að láni og því tilfinnanlegra tap ef hann glatast.
Brotin var rúða í dyrum, til þess að komast inn
Þarna neðst í þessum skáp var gler brotið til að nálgast "rebba" . Vegfarandi lét lögreglu vita í morgun og kom lögreglan fljótt á vettvang og rannsakaði svæðið. Lögreglan mun hafa fundið nokkuð persónulegt, sem þjófurinn hefur greinilega misst. Ekki er þó vitað hvort einn eða fleiri voru að verki, en af vegsummerkjum má ráða að viðkomandi hafa ekki veri með mjög háa greindarvísitölu í kollinum, þegar innbrotið var framið.
14. desember 2003 "Hann setti svip á bæinn" Jónas Bergmann Guðmundsson málari, fæddur 9. mars 1922
Síldarverksmiðjan Rauðka, Löndunarbryggja, árið 1961