Söfnun á mjólkurfernum, dagblöðum og öðrum úrgangi til endurvinnslu.
Á síðustu árum hefur orðið mikil þróun í að endurvinna það sem til fellur frá heimilum og fyrirtækjum. Eftir að lög um úrvinnslugjald og þegar úrvinnslusjóður var settur á laggirnar, var farið að leggja gjald á ákveðna vöruflokka með það í huga að nota þá fjármuni til að kosta flutning og endurvinnslu á þeim. Á næstu árum munu æ fleiri hagrænir hvatar verða teknir upp til að koma upp skilvirku fyrirkomulagi á söfnun og endurvinnslu. Settar hafa verið reglur um minnkun á úrgangi á næstu árum, í samræmi við það verður æ dýrara fyrir sveitarfélögin að flytja og urða óflokkaðan úrgang.
Það er hlutverk hvers sveitarfélags að fylgja eftir þessum reglum.
Sumir flokkar einsog samsettar pappa fernur bera skilagjald sem sveitarfélagið fær fyrir söfnun. Sú leið hefur verið farin að láta knattspyrnufélagið safna fernunum fyrsta fimmtudag í mánuði og einnig er hægt að fara með þau í gám á bensínstöðvarplaninu. Úrvinnslusjóður sér um að greiða flutning á endurvinnslustað fyrir þann úrgang sem heyrir undir lögin.
Flytjandi flytur til Akureyrar til endurvinnslu erlendis.
Sá úrgangur sem er flokkaður í dag er.
- Samsettar pappaumbúðir þ.e. fernur undan ávaxtasöfum og mjólk
- Spilliefni svo sem leysisefni, framköllunarvökvar, skordýraeitur, málning ofl. á að fara með niður í áhaldahús er flutt til Endurvinnslunnar á Akureyri.
- Hjólbörðum er safnað á gámasvæðinu og ÓK Gámaþjónusta sér um að flytja til endurvinnslu.
- Ökutæki sem eru skráð eftir 1988 bera skilagjald sem hefur verið innheimt áður með bifreiðagjöldum. Skila þarf ökutækinu á gámasvæðið og er fyllt út sérstakt eyðublað sem skila þarf á skoðunarstöð. 10.000 kr eru greiddar fyrir ökutækið til skráðs eiganda. Starfsmenn áhaldahússins sjá um að tæma olíu og rafgeima af ökutækinu sem er flutt með brotajárni suður til Furu í Hafnarfirði.
- Skilagjaldskyldar umbúðir af drykkjarfernum eru gler og plastflöskur sem lagt er skilagjald á við innflutning eða framleiðslu. það er svo greitt til baka þegar þeim er skilað. Áldósirnar verða að nýjum dósum. Glerflöskurnar eru malaðar niður og notað í fyllingarefni. Plastflöskurnar eru einnig malaðar og notaðar í ýmisefni einsog flís fatnað.
Annar úrgangur sem er flokkaður en heyrir ekki undir lög um úrvinnslugjald eru
- Öllum garðaúrgangi er safnað í bæjarlandinu og hann jarðgerður í Hólsdalnum. Einota vörubretti og trjágreinar er kurlað og blandað saman við garðaúrganginn og honum snúið reglulega. Við þetta jarðgerist hann og úr verður gróf molta sem gott er að nýta í trjábeð og til uppgræðslu.
- Dagblöðum og tímaritum er hægt að skila í gám á bensínstöðvarplaninu og er hann fluttur með til Akureyrar til endurvinnslu erlendis.
- Rauði krossinn á Siglufirði tekur á móti notuðum fatnaði, heilum og hreinum. Setja þarf fötin í svartan plastpoka og binda fyrir.
- Apótekið á Siglufirði tekur á móti ónotuðum og útrunnum lyfjum.
- Kerti og kerta afganga er hægt að skila til Iðju fatlaðra Suðurgötu 4 og eru þau brædd niður og notuð í ný kerti.
- Brotajárni er safnað á gámasvæðinu og það flutt suður til Hafnarfjarðar sjóleiðina til endurvinnslu.