FRÉTTIR: 1.-5. Október 2003
1. október "Hann setti svip á bæinn" Ármann Jakobsson bankamaður, fæddur 5. ágúst 1914
1. október Í gærkveldi kl. 20:00 var haldið hóf í húskynnum leikskólans LEIKSKÁLAR á Siglufirði í tilefni af 10 ára afmæli skólans. Við það tækifæri voru haldnar ræður að venju og skólanum færðar gjafir. Þá var einnig opnuð heimasíða skólans sem ber heitið Leikskálar Siglufirði með tengilinn http://www.leikskolinn.is/leikskalar/ Á myndinni er Særún Þorláksdóttir leikskólastjóri, að bjóða gesti sem voru fjölmargir, velkomna. Smelltu HÉR til að sjá fleiri myndir – Ath. 2015- tengillinn var: http://siglo.is/leikskoli/
1. október Skyndi hjálp Rauðakrossins - Rauði krossinn gaf út fyrir nokkru 52ja stykkja spilastokk. Þessi spil eru eins og venjuleg spil að öðru leiti en því að á hverju spili er spurning og heilræði sem allir hafa gott af að lesa.Á síðu minni Lífið á Sigló mun birtast í hverri viku, (mánudaga) eitt spil á síðuna, þar til þau eru orðin 52. Öll spilin verða sýnileg á sömu síðu jafnóðum og þau birtast.
Ath. 2015: Til að spara endurtekningar og pláss á netinu, þá er HÉR tengill til nokkurra sýnishorna.
1. október Skólaíþróttir Mikið stóð til og mikið fjör var á íþróttavellinum við Túngötu í morgun. En unglingadeildir Grunnskólans kepptu við mikinn fögnuð áhorfenda, í hinum ýmsu greinum sem helst minnti á kraftakarla keppni. Tekinn var tími á keppendum og stig gefin. Mikið kapp og mikil gleði. Smelltu á HÉR til að skoða fleiri.
1. október 16:00 Sigurvin, bátur björgunarsveitarinnar Strákar, fór með mannskap út á Siglunesfjörur og sótti þangað rekavið sem Örlygur ætlar að nota inni í Bátahúsi Síldarminjasafnsins í "bryggjur." Ég kom að er þeir voru að hífa rekaviðinn í land upp á bíl. En Sveinn Þorsteins var með í för rekaviðsmanna og tók slatta af myndum sem sjá með því að HÉR.
1. október "Hann setti svip á bæinn" Jón Stefánsson, forstjóri fæddur 23. október 1907
2. október SR-VÉLAVERKSTÆÐI Á SIGLUFIRÐI. Ég leit inn á vélaverkstæðið í morgun og heilsaði upp á mannskapinn og tók myndir af nokkrum þeirra. Á Vélaverkstæðið er góður og vel hæfur mannskapur ásamt úrvals vélakosti sem gerir þeim kleift að vinna margbrotin störf, allt frá flóknum véla og tækjaviðgerðum til allskonar nýsmíði, sem raunar er aðal þjónustusvið þeirra. Smelltu HÉR
2. október Sigló-myndir: Þórleifur Haraldsson eigandi framköllunarstofunnar, Erla Erlendsdóttir ýtustjóri er hér að velja filmur til að láta hann vinna eftir. Framköllunar þjónusta á Siglufirði hefur verið og er árstíðabundin segir Þórleifur, svo hafa stafrænu myndavélarnar gert strik í reikninginn hvað framköllun varðar, en nú er aftur á móti að aukast salan hjá honum á myndarömmum sem hann á talsvert úrval af. Þá selur hann auðvitað einnig bæði stafrænar myndavélar sem aðrar tegundir ásamt fleiri vöruflokkum.
2. október Bæjarskrifstofan. Ég heimsótti Bæjarskrifstofuna eftir hádegið og smellti af nokkrum myndum af starfsfólkinu, þeim sem voru á staðnum. Þetta er bæjarstjórinn Guðmundur Guðlaugsson. Smelltu á HÉR til að sjá fleiri
3. október "Hann setti svip á bæinn" Jósef Flóvents fæddur 11. janúar 1914
3. október Verslunin Úrval. Þessa blómarósir, Gréta Hansdóttir og Auður Gunnarsdóttir vinna í versluninni Úrval. Það var lítið að gera í versluninni er ég heimsótti hana í morgun og voru stúlkurnar voru að raða upp í hillur er ég kom.
Gréta Hansdóttir og
Auður Gunnarsdóttir
Sandra Guðjónsdóttir
Leonardo Passaro verslunarstjóri
3. október Hann á afmæli í dag. Hann Árni Heiðar Bjarnason er tvítugur í dag og brosti blítt framan í mig er ég smellti mynd af honum þegar ég heimsótti Olís eftir hádegið, þar sem hann var staddur. Þar voru fleiri að vanda, og myndir af þeim koma í ljós ef þú smellir HÉR
4. október "Hann setti svip á bæinn" Aðalsteinn Friðfinnsson veitingamaður,
fæddur 25. mars 1930
4. október Fyrsta alvöru frostið í haust var síðastliðna nótt, en tjörnin í suðurbænum náði að frjósa og mynda þunna skel á tjörnina. Eina svæðið sem slapp var undan læknum, (lengst til hægri) en þar héldu álftirnar 5 sig ásamt fleiri fuglum. Mest mældist frostið í nótt -6°C En um hádegið var kominn um 4 °C hiti á svæðinu, en í norðurbænum rúmlega 6 °C hiti.
4. október Verslunarfélag Siglufjarðar. Ég leit þangað inn í morgun. Þar var mikið að gera er ég kom inn. En starfsfólkið sem var á vakt gaf sér þó tíma til að lofa mér að smella á það myndum.Myndir HÉR
5. október "Hann setti svip á bæinn" Ásgrímur Stefánsson verkamaður fæddur 30.maí.1920
5. október Mánafoss / Eimskip losar hér á Siglufirði í viku hverri 25-30 gáma á Hafnarbryggju og Óskarsbryggju til skiptis, hvorutveggja í sömu ferð. Þetta eru í meirihluta, aðallega vörugámar til og frá Rækjuverksmiðjunum Pólar og Þormóðs Ramma Sæberg, svo og Primex. hf.
5. október Haustið er komið, þarna er Njörður Jóhannsson að ganga frá trilluhorni sínu Ósk fyrir veturinn. þetta eru hin hefðbundnu störf trillukarla og áhugamann að búa um báta sína sem best fyrir komandi vetur.