Fréttir 22.-30. sept. 2003
22. september "Þau settu svip á bæinn" Hjónin Katrín Pálsdóttir hjúkrunarkona, fædd 10. nóvember 1907 og
Hlöðver Sigurðsson skólastjóri, fæddur 29. apríl 1906
22. september Fyrsti "snjórinn" ! Smá föl féll í nótt, rétt nóg til að lita göturnar, en tæplega til að lita gróður og bíla, í byggð, en lítilsháttar í fjöllum. En þessi úrkoma skapaði hálku á vegum, sem bílstjórar gerðu sér grein fyrir og engum datt í hug að setja á snjódekkinn, því þeir bjartsýnustu ætla ekki að láta snjóa fyrr en í janúar-febrúar á næsta ári. Ekkert óveður náði til að hrella Siglfirðinga eins og suma nágranna okkar. Nú sem oft áður voru það fjöllin okkar sem veittu okkur skjól.
22. september SR-Vélaverkstæði, ég leit inn til þeirra félaga í morgun, ég átti við þá einkaerindi- og smellti þessari mynd af þeim félögum í leiðinni; Sverrir Elefsen, Óskar Berg Elefsen og Sveinn Filippusson
22. september Leikskólinn á Siglufirði Ég heimsótti Leikskólann eftir hádegið í dag, en ég fékk beiðni / tillögu alla leið frá Siglfirðingum búsettum í Danmörku um að gaman væri að sjá andlit ungu kynslóðarinnar einnig. Þetta þótti mér frábær tillaga og lét verða af því strax. Í leikskólanum eru yfir 70 börn, sum börnin eru að vísu fyrir hádegi og önnur eftir ádegi og enn önnur allan daginn eins og gengur. Starfsliðið er um 22. Af útliti krakkanna og glaðværð þeirra leyndi sér ekki að þau voru í góðum höndum. Krakkarnir töluðu mikið um það að snjórinn sem var á lóðinni þeirra í morgun hefði allur farið upp í fjöllin, en þau létu það ekki á sig fá, þau höfðu um nóg að hugsa og nóg að gera. Smelltu á Leikskálar, þá sérðu fleiri.
23. september "Hann setti svip á bæinn" Eiríkur Guðmundsson bæjarverkstjóri, fæddur 28. júní 1908
23. september Í síðasta tölublaði Hellunnar var lofgrein um fyrirtækið Rafbær og þar tíunduð réttilega hina frábæru þjónustu sem verslunin, starfsfólkið og viðgerðarþjónustan sinnir. Mig langar til að bæta aðeins við, þeirri frábæru þjónustu sem Rafbær veitir, en það varðar tölvuþjónustuna, þar er Júlíus Hraunberg aðal maðurinn. Myndin er af Júlíusi í morgun þar sem hann er að uppfæra flókinn hugbúnað fyrir tæknifræðing Rafbæjar, Inga Hauksson.
23. september Skrifstofa Þormóðs Ramma Sæberg hf. er nýlega flutt í glæsilegt húsnæði, þar sem fiskverkun "Rammans" var áður til húsa. Ég skrapp þangað í morgun og smellti nokkrum myndum af starfsfólkinu við vinnu sína. Smelltu á tengilinn Rammi til að skoða árangurinn.
23. september Skólabíll. Krökkunum í barnaskólanum, er keyrt á milli skólahússins og Sundhallarinnar í tengslum við sundkennsluna. Ég kom á vettvang í morgun. - Strax er krakkarnir sáu mig komu þau hlaupandi á móti mer, eins og sjálfur jólasveinninn væri mættur og báðu um myndatöku sem að sjálfsögðu var framkvæmd Smelltu á Skólabíll til að sjá fleiri.
24. september "Hann setti svip á bæinn"Matthías Jóhannsson sjómaður/kaupmaður
fæddur 23. júlí 1923
24. september Bókasafnið. Þangað á ég leið annað slagið vegna gagnaöflunar og þar var ég í gær. Þetta eru; Bókasafnsstjórinn Ingibjörg Ásgeirsdóttir og Sigríður Sigurjónsdóttir bókavörður. Ég smellti einnig myndum af þeim gestum sem inni voru að þessu sinni. Smelltu á Bókasafnið til að skoða þær.
24. september Kiddi G Allir þekkja Kristinn Georgsson, slökkviliðsstjórann okkar (með fleiru) hann hefur nýlega fengið sér nýjan reiðskjótta, - þessa glæsilegu Hondu. F-55 - Þetta er afmælisgjöfin til mín frá mér sjálfum sagði hann. Kiddi verður 70 ára um næstu áramót.
24. september Slökkvistöð Siglufjarðar er mjög vel búin tækju, tækjum sem eru í 1. flokks ásigkomulagi, enda er slökkviliðsstjórinn ötull við að sinna sínum tækjum og bæjarstjórn skilningsrík á því að þessir hlutir þurfi að ver í lagi og veitir miklum fjármunum til tækjakaupa. Ég heimsótti nokkra vinnustaði í morgun að vanda. Slökkvistöðina þar sem Kiddi var að þvo einn af bílakostinum, því þó þeir séu lítið notaðir sem betur fer nema við æfingar, þá þurfa tækin andlitssnyrtingu annað slagið sagði Kiddi. - Þá heimsótti ég Mumma hjá Norðurfrakt (nældi þar í "auglýsingu") og kom svo við hjá Jóni Andrjes hjá Vörumiðlun /Olís Smellið á HÉR til að sjá hinar.
25. september "Hann setti svip á bæinn" Óskar Guðlaugsson skósmiður, fæddur 5. ágúst 1909
25. september Hársnyrtistofa Möggu Dóru Ég lét klipp af mér "lubbann" í gær og tók í leiðinni þessa mynd, en þetta er Margrét Dóra Árnadóttir hárgreiðslukona að sinna einum af viðskiptavinum sínum.
25. september Síldarminjasafnið er stöðugt í þróun og uppbyggingu. Þessir tveir kappar vinna við að lagfæra húsnæði "GRÁNU" þar sem verið er að undirbúa innréttingu á "rannsóknarstofu" og "rafmagnsverkstæði" eins og viðkomandi aðstaða leit út hér á árum áður er síldin var í algleymingi. Ég hitti þá í kaffitímanum í morgun og smellti á þá smiðina mynd. Róbert Pálsson og Sveinn Þorsteinsson
26. september "Hann setti svip á bæinn" Leó Jónsson síldarmatsmaður, fæddur17. nóvember 1904
26. september Þessa heiðursmenn hitti ég í morgun hjá Olís, en þetta eru Baldvin Jóhannsson trésmiður, 82 ára unglingur og Jón Sigurðsson afgreiðslumaður Olís. Ég heimsótti einnig bæjarstarfsmenn Siglufjarðarkaupstaðar ("útimennina") í kaffitímanum í morgun. Smellið á Bæjarkarlar til að sjá þær myndir.
26. september Litlu mátti muna að slys yrði rétt fyrir hádegið þegar vegakantur lét undan einum af stóru bílum Suðurverks, er hann var á Skálarvegi við vinnu vegna vegalagnar í tengslum við Snjóvarnargarðana. Myndin sýnir þegar grafa er að aðstoða bílinn að komast aftur upp á vegin. Engin meiðsl eða skemmdir, aðeins smátöf á verki.
27. september "Hann setti svip á bæinn" Jón Guðjónsson skipstjóri, fæddur 19.september 1912
27. september Bás ehf er nú þessa dagana að ljúka verki sínu vegna Gránugötu, þarna er framkvæmdastjórinn sjálfur Sveinn Ástvaldsson að "sjóða" saman holræsislögn sem sett verður út í sjó fram nokkra tugi metra. Fleira kom fyrir auga myndavélarinnar þennan morgun. Smelltu HÉR, þá sérðu fleiri myndir sem ég smellti af í morgun.
27. september Síðasti malbikunardagurinn? Nú í morgun var byrjað á lokaáfanga malbikunar vegna framkvæmda við Gránugötu, veður til þessara hluta er ákjósanlegt, sólskyn og 10 °C hiti. Þá er ætlunin að malbika ýmsa smærri fleti víðsvegar um bæinn, lagfæringar á eldri malbikun, bílastæðum ofl.
27. september Stórtónleikar. Í kvöld munu halda tónleika í kirkjunni, þau Gunnar Guðbjörnsson, Sigrún Hjálmtýsdóttir, Kristinn Sigmundsson. Undirleik annast Jónas Ingimundarson.- Dagskráin: Íslensk lög og óperettur. Meðfylgjandi ljósmynd sem tekin er "fyrir sunnan," er frá mbl.is/Þorkell og er af Sigrúnu Hjálmtýsdóttur, Kristni Sigmundssyni og Jónas Ingimundarsyni
27. september GJAFAKOT, ný verslun var opnuð í dag með "promp og prakt" Þetta er verslun sem er með, ma. Húsgögn, lampa, allskonar gjafavörur, leikföng, búsáhöld ofl. Verslunarstjórinn og eigandi er Siglfirðingurinn Jónína Jónsdóttir, dóttir Jóns Kjartanssonar fyrrverandi bæjarstjóra Siglufjarðar. Hún hefur verið búsett á Suðurlandinu eftir að foreldrar hennar fluttu brott, en nú er hún komin heim, -- a.m.k. með annan fótinn. Smelltu HÉR til að skoða myndir teknar inni í búðinni.
28. september "Hann setti svip á bæinn" Skarphéðinn Björnsson sjómaður,
fæddur; 11. nóvember 1924
28. september Þessa tvo heiðursmenn hitti ég á Bensínstöðinni í morgun; Bjarni Þorgeirsson málarameistari og Þór Jóhannsson, hreinsitæknir.
28. september Malbikun er enn á fullu og öll Gránugatan malbikuð. Nú eru það bílastæðin , gangstéttir og ýmsar smá viðgerðir sem eiga hug Akureyringanna sem vinna að malbikun.
28. september Mánafoss á leið út Siglufjörð um 11:30 í morgun.
29. september "Hann setti svip á bæinn" Kristján Sigurðsson smiður, fæddur 4. nóvember 1902
29. september Skólplögn "Gránugötu" Það gátu ekki verið betri ytri aðstæður en þær sem Bás ehf fékk er þeir gengu frá skólplögn sem liggur í sjó fram en einmitt seinnipartinn í gær. Algjörlega ládauður sjór, logn og stórstreymt. Það var rigning klukkustundinni áður en rörið var hífað í sjó fram, en það stytti upp um leið og byrjað var á sjálfri hífingunni. En í morgun var komið talsvert kvika, sem hefði gert verkið óvinnandi. Nokkrar fleiri myndir koma í ljós ef þú smellir HÉR
29. september Þessi fallega skúta, ÓSK eiga þau hjónin Sveinn Filippusson vélsmiðs og Steinunn Erla Marinósdóttir. Skútan sem er að mestu úr stáli, smíðaði Sveinn sjálfur - og naut við það aðstoðar konu sinnar við það. Hann var að sigla inn fjörðinn um kl.16:30 í gær í rigningu og logni.
29. september Berg hf. sem tók að sér að reisa Bátahúsið við Síldarminjasafnið vinnur nú að því hörðum höndum að smíða þakeiningarnar sem koma á húsið. Þeir eru með góða aðstöðu inni í "Aravíti" (gamla tunnuverksmiðjan / húseiningar) Þetta eru þeir Hallgrímur Sveinn Vilhelmsson og Sverrir Sigurjón Jónsson. Sá sem er á neðri myndinni er Birgir Guðlaugsson byggingameistari
29. september
Sjórinn bar greinilegan svip aurburðar úr fjallinu og sjórinn sem var ládauður í gær, hefur nú bætt í kviku.
Lækjarfarvegir sem fólk var nærri búið að gleyma, birtust allvíða í fjöllunum okkar. Þessir eru á Gimbrakletta svæðinu.
29. september Hvanneyraráin stækkaði nokkuð rösklega í nótt í fyrstu alvörurigningu ársins sem mældist um 23mm. á Sauðarnesi og sögð mesta rigning á landinu.
Ekki flæddi þó yfir veginn eða stífluna sem Suðurverksmenn gerðu fyrr í sumar, en þeir gátu þó ekki hafið vinnu í dag vegna vatnselgs á svæðinu, en fjallið varð að einum víðáttumiklum lækjarfarvegi vegna rigningarinnar.
"29. september" Og svo var ég að kvarta !
Ég gat ekki stillt mig um, að lofa ykkur að lesa eftirfarandi pistil úr Siglfirðing frá 17. júlí 1947
Búpeningur á götum bæjarins
Nú er svo komið að kýrnar "spásséra" um götur bæjarins rétt eins og ekkert sé eðlilegra. Langt er frá því að það sé viðeigandi eða sýni neinn menningarvott að láta skepnur ganga á götum bæjarins innan um íbúa og aðkomumenn.
Í lögreglusamþykkt bæjarins, er svo fyrir mælt. Að bærinn eigi að sjá kúm þeim sem einstaklingar eiga, fyrir bithaga, enda ekkert eðlilegra. Það hlýtur að vera verk bæjarstjóra eða bæjarstjórnar að sjá um framkvæmd á þessari fyrirskipun lögreglusamþykktarinnar.
En ekkert er aðhafst í þessu frekar en öðru, sem bæjarins er að sjá um.
Girða þarf ákveðið svæði þar sem bæjarbúum gefst tækifæri til að hafa kýr sínar á beit, eða jafnvel taka upp aðferðina sem notuð var í gamla daga, að til þess ráðnum "kúarektor," sem fór með kýrnar í haga á morgni hverjum og skilaði þeim heim að kveldi.
Vill nú ekki bæjarstjórnin taka til vinsamlegrar athugunar hvort ekki sé hægt að hefjast handa í þeim málum sem mest aðkallandi eru þó kosningar standi ekki fyrir dyrum.
Núverandi bæjarstjórnarmeirihluti má vita að þó hann hafi hingað til sofið á málunum, þá er betra seint en aldrei að hefja framkvæmdir og vissulega munu bæjarbúar muna gang málanna næst, þegar þeir velja menn i bæjarstjórn.
29. september Þessar álftir, sennilega hjón með 3 unga (?) spókuðu sig í ætisleit á tjörninni í suðurbænum í kvöld klukkan 18:30 - Eftir tilburðum þeirra að dæma virtust þær hafa nóg að éta. Þær munu hafa komið á þetta svæði í gærkveldi. Þetta er frekar óvenjuleg sjón, en þó ekki einsdæmi.
30. september "Hann setti svip á bæinn" Gísli Sigurðsson bókavörður, fæddur 20. maí 1905
30. september Þessar stúlkur; Ragnheiður Ragnarsdóttir og Ingibjörg Ólafsdóttir eru að skella sér inn í veitingabransann. En þær hafa tekið á leigu húsakynnin Nýja Bíós. Þær hafa verið önnum kafnar í smá lagfæringum og breytingum. Þarna eru þær í kaffipásu. Iðnaðarmenn er einnig að störfum, málarar og smiður + afbragðsgóður handlangari. Smellið á HÉR og skoðið fleiri.
30. september Starfsmannafélag SR. Nokkrir starfsmenn Síldarvinnslunnar, félagar í Starfsmannafélagi Síldarverksmiðja Ríkisins eins og það heitir enn, þrátt fyrir nafnabreytingar fyrirtækisins sem þeir vina hjá, fara ásamt mökum, - 22ja manna hópur til Búdapest nk. fimmtudag. Ég leit inn á skrifstofu Síldarvinnslunnar á Sigló og smellti myndum af nokkrum ferðalöngunum. Smelltu HÉR
30. september Rigningin er hætt, í bili að minnsta kosti- og Suðurverksmenn gátu snúið aftur til vinnu án þess að eiga á hættu að fara á kaf í vatns og aurflóði sem í fjallinu var í gær. Þarna eru þeir uppi í gilinu norðast á svæðinu. Þeir eru þarna að undirbúa efnisflutning, færa jarðveg neðar í hlíðina, þaðan sem það verður flutt í burt eftir því hvort um mold, grjót eða stórgrýti er að ræða.