15. desember 2003 "Hann setti svip á bæinn" Erlendur Pálsson, skrifstofumaður, fæddur 7. október 1920
15. desember 2003 Þeir hafa unnið á vélum sínum hörðum höndum uppi í fjallinu við gerð snjóflóðavarnargarðana, karlarnir frá Suðurverk. Þrátt fyrir snjó sem komið hefur undanfarna daga í fjallið þá láta þeir engan bilbug á sér finna. Þarna voru þeir í gærkveldi að borða kvöldverð á Kaffi Torg. Þeir fengu sér að þessu sinni pitsur, til tilbreytingar.
15. desember 2003 Deild verslunarmanna innan Verkalýðsfélagsins Vöku hélt Aðalfund sinn í einum af sölum Kaffi Torg (Bíó Café) í gærkveldi. - Ný stjórn var kjörin eins og venja er á aðalfundum. Þessi þrjú hlutu einróma kosningu; Hulda Ósk Ómarsdóttir, Guðmundur Gauti Sveinsson formaður og Agnes Björnsdóttir. Varamenn voru kjörnir Ólöf Ingimundardóttir, Rut Hilmarsdóttir og Guðrún Jakobína Ólafsdóttir. Smelltu HÉR til að skoða myndir
15. desember 2003 Ég átti erindi til hennar Beggu, vegna "blóðtöku" klukkan 8 í morgun og notaði tækifærið og tók myndir af öllu því starfsfólki sem til staðar vöru á Heilbrigðisstofnuninni. Þessi mynd er af stöllunum fyrir almenna opnun, í morgunkaffi. Smelltu HÉR til að sjá hinar skvísurnar og þá fáu karlmenn sem til staðar voru. (þetta er kvennaveldi !)
15. desember 2003 Siglómyndir. Loksins-loksins, lét hann varða að því drengurinn. Nú lét Þórleifur Haraldsson eigandi Siglómyndir ehf. verða af því að kaupa sér græjur svo hann geti sinnt viðskiptavinum sínum betur og nú með því að geta tekið beint á móti kortum úr stafrænu myndavélunum og eða CD diskum og prentað allar stærðir með fullkomnum gæðum allt upp í A3 stærð. (21x42 cm.) Og auðvitað getur hann einnig komið filmunum þínum yfir á CD diska. Það tekur strákinn smá tíma að læra á ósköpin, en þetta eru topp græjur og það kemur.
16. desember 2003 "Hann setti svip á bæinn" Jón Kristjánsson allrahandasmiður frá Lambanesi. Fæddur 24. apríl 1890
16. desember 2003 Rigningin undanfarið hefur valdið því að jarðvegurinn sem Suðurverk hf. hefur flutt til úr fjallinu sunnanverðu til svæðisins norðan, ofan Strandarvegar, sígur jafnt og þétt niður hlíðina og oft á tíðum yfir veginn. Nú í morgun í rigningunni, var unnið að því að grafa skurð fyrir ofan veginn og flytja moldina út eftir og niður í Selgilið þar sem hluti af leðjunni fer til sjáfar.
17. desember 2003 "Hann setti svip á bæinn" Sveinn Þorsteinsson hafnarvörður, fæddur 15. desember 1892
Vorið 1970 ?
www.local.is | 17/12/03 09:45 | Norðurland Öll skip Þormóðs ramma - Sæbergs hafa lokið veiðum. -- Rækjuskip Þormóðs ramma - Sæbergs luku öll veiði á þessu ári í síðustu viku. Múlaberg veiddi alls 1.259 tonn, Stálvík 1.122 tonn og Sólberg 1.227 tonn. Alls veiddu þessi þrjú skip því 3.608 tonn, en afli þeirra á síðasta ári var 3.564 tonn.
Að auki veiddi rækjufrystitogarinn Sunna 937 tonn en skipið var eingöngu á veiðum fyrri hluta ársins.
Þormóður rammi - Sæberg hf. gerir út 10 skip frá Siglufirði, Ólafsfirði og Þorlákshöfn. Fyrirtækið starfrækir rækjuverksmiðju og pökkunarstöð á Siglufirði og flatfisk- og humarvinnslu í Þorlákshöfn.
17. desember 2003 Ljósleiðarinn sem liggur upp í tækjahús Landssímans uppi á Hvanneyrarskálarbrún, slitnaði í gærmorgun og sjónvarp og útvarp til Siglfirðinga rofnaði af þeim sökum. Það er að segja við náðum Ríkisútvarinu en ekki Skjá 1, Bylgjunni og Stöð 2. Ástæðan fyrir biluninni var sú að verið var að moka snjó af veginum sem liggur upp í Hvanneyrarskál, en þar sem búið var að undirbúa veginn vegna lagfæringa sem gera á á veginum í vor, þá var grynnra en vitað var niður á ljósleiðarastrenginn og tönn snjómoksturstækisins náði að krækja í hann inn við vegakantinn. Síminn brást fljótt við og sendi lið til viðgerða, en ljóst er að viðgerðin kostar nokkur hundruð þúsund krónur. Sjónvarpið komst á um kl 20:00 í gærkveldi, en í morgun var verið að ganga tryggilega frá ljósleiðaranum. (Myndin af tengistöð Símans uppi á skálarbrún, er tekin sl. sumar)
www.local.is | Mið. 17. des. 10:40 | NorðurlandÞormóður rammi - Sæberg stofnar Karlsberg
Þormóður rammi - Sæberg hf. hefur stofnað einkahlutafélagið, Karlsberg ehf., sem er að öllu leiti í eigu Þormóðs ramma - Sæbergs. Tilgangur félagsins er meðal annars eignarhald og viðskipti með verðbréf. Með kaupsamningi dagsettum í dag flytjast öll hlutabréf í eigu Þormóðs ramma - Sæbergs hf. yfir í hið nýja félag, nema hlutabréf í Ráeyri ehf. Verðmæti hlutabréfanna er um 417 milljónir króna
18. desember 2003 "Hann setti svip á bæinn" Jón Þorsteinsson bifreiðastjóri, fæddur 27 apríl 1921
Kaffihlé í Mjölhúsi SR46 árið 1963: Símon Gestsson Barði (?), Friðrik Stefánsson í Bakka, Sigfús Ólafsson, Ólafur Eiríksson, og Ragnar Kristjánsson.
18. desember 2003 Aðsent: Heill og sæll Steingrímur.Ég vil byrja á að þakka þér kærlega fyrir vefinn sem ég skoða daglega og er kærkomin viðbót við Helluna til að fá fréttir frá Siglufirði. Ég er með jólakveðju frá saumaklúbbnum mínum sem er einn af fjölmörgum Siglufjarðarsaumaklúbbum. Við höfum hist í mörg ár og gert allt annað en að sauma og árlega hittumst við og höldum jólasaumó. Sá klúbbur var haldinn hjá mér í Mosfellsbænum í gær og buðum við með okkur gestum (frá Siglufirði, nema hvað) því þrír meðlimir klúbbsins, þær Rikka, Hulda Alfreðs og Steina Matt eru fluttar aftur norður á Siglufjörð. - Á myndinni eru, Nína Hauks (Hauks og Ernu), Jónína Hafdís (Kidda Rögg), Herdís Sigurjóns (Budda og Ásdísar), Konný Agnars (Agnar Þór), Jóna Bára (Hauks á Kambi), Rakel Björns (Björns Jónasar) og Elsa Inga Konráðs (Konna Bald)
Við sendum okkar bestu kveðjur til allra Siglfirðinga og sérstaklega til okkar elskulegu saumaklúbbsvinkvenna. Sjöstjörnur; (Herdís Sigurjónsdóttir) ----- Kærar þakkir, S.K.
18. desember 2003 Aðsent: - Hann er ekki af baki dottinn hann Trausti, uppáhalds vinur okkar Siglfirðinga hvað Héðinsfjarðargöng varðar. Í norðlenskum fréttum á www.ruv.is kemur fram að Trausti Sveinsson hafi beðið sveitarfélagið Skagafjörð um styrk upp á 4. miljónir til að kynna fljótaleiðina umfram Héðinsfjarðargöng. -- Sem betur fer fékk hann ekki styrkinn. nn
18. desember 2003 Hátíðarfundur var til að minnast 120 ára skólastarfs á Siglufirði, en í dag 18. desember eru nákvæmlega 90 ár síðan barnaskólahúsið (1.hluti) var vígt. Einnig var fundurinn í dag 150. fundur skóla- og menningarnefndar.
Smelltu HÉR til að sjá myndir og nöfn.
19. desember 2003 "Hann setti svip á bæinn" Páll Gestsson skipstjóri, fæddur 13. júní 1926
19. desember 2003 Einu sinni var, ekki þó alls fyrir löngu var 15 sentímetra þykkur lagís á firðinum okkar. Það var árið 1968 og þetta er Haförninn, nýkominn að bryggju eftir að hafa átt í langri baráttu við hafís fyrir öllu norðurlandi. Haförninn kom með olíu til Siglufjarðar, sem og á fleiri hafnir fyrir vestan og norðan.
19. desember 2003 "Hann setti svip á bæinn" Óskar Garðarsson verkamaður, fæddur 27. ágúst 1924. Vinur minn Óskar verður jarðsunginn í dag frá Siglufjarðarkirkju. Blessuð sé minning hans.
20. desember 2003 þessi eru komin í jólaskap, starfsfólk hjá Sparisjóðnum, Iðgjaldaskráningu. Ég tók þessa mynd seinnipartinn í gær. Öll eru þau titluð sem bankaritarar að Magnúsi undanskildum. - Aftari röð frá vinstri: Vilmundur Ægir Eðvarðsson, Sigurlaug Þóra Guðbrandsdóttir, Ingibjörg Jósefína Benediktsdóttir, Margrét Ósk Harðardóttir, Stefán Gauti Stefánsson, Perla Fanndal, Magnús Stefán Jónasson deildarstjóri, Pálína Kristinsdóttir, Sigurbjörg Björgvinsdóttir, Telma Björk Birkisdóttir, Helen Svala Meyers, Sigríður Fanný Másdóttir, Sigurlaug Ragna Guðnadóttir og Daníel Pétur Daníelsson
20. desember 2003 "Hann setti svip á bæinn" Haraldur Pálsson skíðakóngur, fæddur 27. júlí 1924
20. desember 2003 Hin hefðbundna jólatrés og grenisala Lionsfélaga er nú á fullu. Þegar ég kom þar við í kvöld., var Jón Dýrfjörð að kaupa greni og jólatré. En kempurnar Jón Hólm, Jón Sigurðsson og Hörður Hjálmarsson voru á vaktinni vegna sölunnar að þessu sinni.
21. desember 2003 "Hann setti svip á bæinn" Einar Albertsson póstfulltrúi / skósmiður, fæddur 12. júlí 1923
Svolítið meiri snjór í desember 1976(?) heldur en núna.
21. desember 2003 Kveðja frá Laurie og Crish Bogan, til Siglfirðinga. Á fyrri myndinni er hann að vinna við símalínu uppi í mastri, en á hinni er hann að grafa skurð í bakgarðinum. Crish Bogan er þeim sem hafa fylgst með uppbyggingu Síldarminjasafnsins, vel kunnur. Lestu HÉR um Chrish.
21. desember 2003 Skíðasvæðið í Skarðdal var opnað í dag. Ég frétti að vísu af því fyrir tilviljun um 14:30 í dag er farið var að rökkva og flest skíðafólkið farið heim, af þeim 15-20 sem þar mætti.
Ég tók þó mynd af starfsmönnunum tveim og tveim ungum snótum, sem voru himinlifandi yfir aðstæðunum. - Þrátt fyrir að ekki hafi þurft að moka veginn á leiðinni upp að skíðasvæðinu og öllum bílum fært., þá var nægur snjór á svæðinu fyrir ofan skíðakofana.
Skarðsdalur og Siglufjarðarskarð
Álfhildur og Bára. -- Þær voru einar eftir í fjallinu, þegar ég mætti, auk starfsmanna.
Sterfsmennirnir,
Eggert Ólafsson og Hákon Antonsson