19. október "Hann setti svip á bæinn" Sveinn Ásmundsson byggingameistari, fæddur 16. júní 1909
19. október Málmey SK 1 Frystitogarinn frá Sauðáskrók kom hingað í morgun. Hann var búinn að vera úti á veiðum er uppgötvaðist að umbúðir höfðu ekki verið rétt afgreiddar um borð, en í morgun kom bíll frá Sauðárkrók með umbúðir. Togarinn notaði og biðina til að taka hér olíu.
19. október Hinir dæmigerðu haustlitir, hafa nú tekið við af hinum græna blæ sumarsins. Fjöllin, húsin, og lognið gerir þessa mynd táknræna fyrir Siglufjörð. Það er mikill raki í loftinu, eins og svo oft á haustin, þoka og snjólitur til fjalla, en hangir samt "þurr". Álftirnar sem á þessari tjörn hafa verið frá í haustbyrjun, eru þarna enn, en tjörnin, sem ég verð að játa, að vita ekki hvað heitir, speglar sínu fegursta í rökkurbyrjun ! kl. 16:00 í dag. Nokkur nöfn hafa verið nefnd í mín eyru, en ekkert séð "skjalfest". Hún hefur verið kölluð ýmsum nöfnum. En hvað heitir hún? (skjalfest)
19. október Íbúum á Siglufirði fjölgaði á tímabilinu júní - september. - Íbúum á Siglufirði fjölgaði um 3 á tímabilinu júní til september, þ.e. ef aðfluttir voru þremur fleiri heldur en brottfluttir. Er þetta í fyrsta skipti síðan tekið var á móti flóttamönnum að fjölgun verður á þriggja mánaða tímabili sem Hagstofa miðar við. Á tímabilinu janúar til september voru brottfluttir hins vegar 6 fleiri heldur en aðfluttir þannig að fækkunin er 6 það sem af er árinu. Þessi frétt, (ekki myndin) er sótt á vefinn siglo.is -- en ef þú leitar eftir sömu upplýsingum á vef Hagstofunnar.! Hvar þarftu að leita? Jú þú þarft að leita í gögnum sem tilheyra Norðurlandi VESTRA - Ekki í Gögnum Eyjafjarðarsýslu eða Norðurlandi EYSTRA. --- AF HVERJU? Vita menn ekki að frá því að "elstu menn muna," að Siglufjörður hefur alla tíð verið í Eyjafjarðarsýslu?Ath: 2015 ! - Vefsíðan siglo.is tilheyrði á þessum tíma Siglufjarðarkaupstað
20. október "Hann setti svip á bæinn" Guðmundur Guðmundsson málari, fæddur 31. mars 1920
20. október Bátahúsið. Byrjað er að þekja Bátahúsið, það er gert með einingum sem hafa verið smíðaðar af Berg hf, sem sér um verkið.
Suðurgata 10 á Siglufirði
Signý Jóhannsdóttir, formaður Vöku
20. október Verkalýðsfélagið Vaka á Siglufirði. Þangað fór ég í morgun og tók myndir af starfsfólkinu.
20. október Þórarinn Vilbergsson byggingarmeistari. Allir Siglfirðingar þekkja Þórarinn sem haslað hefur sér völl síðustu áratugina við allskonar byggingarvinnu. Nú er hann sestur í "helgan stein" eins og sagt er um þá sem komnir eru á efri ár. Þórarinn er orðinn 84 ára gamall. Hann hefur þrátt fyrir háan aldur og farinn af vinnumarkaðnum ekki sest í leti og aðgerðarleysi, heldur þvert á móti, stundað sín áhugamál af meira kappi en áður því nú hefur hann tíma.
Það sem Þórarinn hefur meðal annars fengist við er að renna hina ýmsu gripi úr allskonar trjávið, bæði þarfagripi og skrautmuni. Hann á sér mjög góða aðstöðu uppi á háaloftinu í heimili sínu við Laugarveg. Gripina smíðar hann á lager og hefur selt til smíðagripina ýmsa einstaklinga, gripi sem eru mjög fagmannlega gerðir úr vandlega völdu efni. Smelltu HÉR til að skoða hvað hann hefur haft fyrir stafni.
21. október "Hann setti svip á bæinn" Jóhann Þorvaldsson skólastjóri, fæddur 16. maí 1909
21. október Þingmaður NA-kjördæmis Íslandsmeistari í brids - Hinn ungi þingmaður Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi, Birkir Jón Jónsson varð um s.l. helgi Íslandsmeistari í einmenningskeppni í Brids en spilamennska er aðal áhugamál þingmannsins. Með Birki Jóni á myndinni er faðir hans Jón Sigurbjörnsson, en hann er fráfarandi forseti Bridssambands Íslands og veitti hann verðlaunin í mótslok. Frétt og mynd frá www.local.is Og auðvitað, þá eru þetta Siglfirðingar.
21. október Sund eða fjörulabb? Fjaran var valin þegar Þórarinn Hannesson spurði krakkana sem áttu að fara í sundtíma voru spurðir. Þau fóru niður í fjöru, og voru á þeim stað er ég sjálfur hafði leikið mér á barns og unglingsaldri. Myndin hér sýnir svæðið sem krakkarnir voru á ásamt kennara sinum. Svæðið hefur tekið miklum stakkaskiptum á frá því fyrir aldamót (þetta er skrítin setning) nánar til tekið árin 1945-1970 - En aftasta myndin í röðinni af þeim 12 sem sjást ef þú smellir HÉR er tekin um 1970 og sést hvernig svæðið sem krakkarnir voru á í dag, leit út þá.
22. október "Hann setti svip á bæinn" Sæmundur Dúason kennari, fæddur 10. nóvember 1889
22. október Eftirfarandi er hluti af frétt frá www.local.is "Jafnframt hefur FH-Rækja hf. samið við útgerðarfélagið Ljósavík í Þorlákshöfn um kaup á tveimur rækjuskipum félagsins, Aski ÁR og Gissuri ÁR, ásamt aflaheimildum sem nema um 6% af heildarúthafsrækjukvótanum. Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki veðhafa."
-- Spurningin er: Má draga þá ályktun af þessu að eigendur Ljósavíkur sé með þessum aðgerðum að búa sig undir að loka Rækjuverksmiðjunni Pólar á Siglufirði eða jafnvel að gera hana gjaldþrota, þar sem með þessum aðgerðum sýnist mér þeir ekki hafa áhyggjur af hráefnisöflun Pólar, með því að flytja 6% heildarúthafsrækjukvótanum og skipin með til Húsavíkur. Þetta eru slæmar fréttir fyrir þessa 20-30 starfsmenn sem vinna hjá Pólar í dag og raunar Siglufjörð í heild.
23. október "Hann setti svip á bæinn" Sigurður Kristjánsson sparisjóðsstjóri, fæddur 24. október 1888
23. október Símastúlkur á Siglufirði og í Fljótum. - Og hver var það sem hélt því fram að hinar landsfrægu Símastúlkur Landssímans á Siglufirði og í Fljótum væri útdaður þjóðflokkur. Það er sko fjarri lagi. Þessi fríði hópur er að vísu hættur að tengja númerin með handafli eins og gert var hér áður fyrr og að auki hættar störfum hjá Landssímanum. Sumar þeirra, (ekki allar) jafnvel farnar af vinnumarkaðinum. En þær eru eldhressar og kátar að venju og líta mjög vel út eins og sjá má á meðfylgjandi ljósmynd sem ég tók í gærkveldi. En þær komu saman í Kiwanishúsinu til að minnast gömlu góðu daganna og fagna því að vera til. Vantar þig veisluborð? Talaðu þá við Kobba bakara. Þær voru í skýjunum símastúlkurnar á myndinni hér fyrir neðan og vildu að ég tæki mynd af veisluborðinu þeirra sem Jakob Kárason í Aðalbakarí útbjó handa þeim.
<<<< Hlaðborðið hans Kobba bakara, sem hann útbjó fyrir símastúlkurnar
23. október Varðskipið Ægir kom hingað í nótt og fór héðan í morgun.
24. október "Hann setti svip á bæinn" Stefán Friðbjarnarson, fv. bæjarstjóri, fæddur 16. júlí 1928
24. október Allir eldri Siglfirðingar muna eftir þessu skipsflaki sem verið hefur á sama stað í marga áratugi, hve lengi veit ég ekki nákvæmlega. Ég var að fletta bókum sem kynnu að segja sögu þessa skips, ég fann ekkert í fljótu bragði. Þeir sem vita af heimildum um þetta skip sem mun hafa heitið Skoger. Vinsamlega sendið mér fróðleik um skipið. Skipið mun hafa brunnið og síðan rekið á þann stað sem það er nú. Það hefur nokkuð rýrnað með tímanum og nú í briminu sem kom þann 21. september sl. rýrnaði það nokkuð til viðbótar. - Myndin er tekin í gær á fjöru 23/10
25. október "Hann setti svip á bæinn" Jóhann Helgi Stefánsson bólstrari, fæddur 22. janúar 1909
25. október Aðgreining á "sorpi" Endurvinnsla Auglýsing frá bænum,.
Það er staðreynd, að síða mín, Lífið á Sigló fær yfir 330 heimsóknir að meðaltali á dag það sem er af þessum mánuði og fer fjölgandi með degi hverjum. Hver "tölva" er þó aðeins talin einu sinni á sólahring. Því er þetta orðinn hinn ágætasti auglýsingamiðill, fyrir utan að í leiðinni styrkir viðkomandi Ljósmyndasafnið og einnig: Lífið á Sigló. Samsvarandi auglýsing eins og hér fyrir neðan frá bænum, "kostar" þig minna, til styrktar safni mínu en þú heldur og þú getur komið fyrir myndum og texta að eigin vali. Og rúsínan í pylsuendanum; hún verður áfram á vefnum þó svo að hún "færist til", henni verður ekki hent í ruslið eins og blöðunum. Hafðu samband.
25. október Golfvöllur Siglfirðinga. Það hefur ekki skeð áður eftir að Golfvöllurinn var tekinn í notkun að hægt væri að leika golf seinnipartinn í októbermánuði. En nokkrir áhugamenn í golfi brugðu á leik í dag eftir hádegið. Völlurinn nær yfir allmikið flæmi, allt í kring um Íþróttamiðstöðina að Hóli í botni fjarðarins, Mér er sagt að þetta sé 9 holu völlur. Í dag er hann eins og á góðum vordegi. Smelltu á HÉR til að sjá "tilburðina."