Fréttir 19.-21. sept. 2003
19. september "Hann setti svip á bæinn" Björn Dúason, rithöfundur (mfl.) fæddur 20. júlí 1916
19. september TÓNLISTARVEISLA !
Stórsöngvararnir Kristinn Sigmundsson, Gunnar Guðbjörnsson og Sigrún Hjálmtýsdóttir "Diddú" ásamt hinum frábæra undirleikara Jónasi Ingimundarsyni halda tónleika í Siglufjarðarkirkju laugardaginn 27. september n.k. kl.20:30
Hér er um stórkostlega tónlistarveislu að ræða og eru Siglfirskir tónlistaunnendur, hvattir til að mæta og eiga ógleymanlega stund með listamönnunum.
19. september Síðustu haustverkin ? Laust fyrir 8 í morgun var þessi mynd tekin, er Eggert Ólafsson, starfsmaður Siglufjarðarkaupstaðar var að hirða "síðustu sláttu haustsins"
19. september Byrjað er á að nýjum akveg sem mun gera fólki kleift að aka á góðum vegi og öllum bílum fært upp í Hvanneyrarskál. Vegurinn á að liggja frá enda "Stóra bola" syðst í bænum, skáhalt í stefnu efri hlutar núverandi vegar. Suðurverk ehf. er með verkið sem innifalið var í verki snjóflóðavarnargarða. Es. árið 2015. Ekki hefur fengist viðhlítandi skýring á því hvers vegna að þessi nefndi hluti tilboðsgagna, vegurinn upp í skál var ekki efndur, en verktaki kláraði ekki verkið og vegurinn því illfær og ófær minni bílum í dag.
19. september "Tjörnin" Þarna mun koma skemmtileg lítil tjörn norðan og neðan væntanlegs snjóflóðavarnargarðs í norðurbænum. Rétt við skilti bæjarins við innkeyrsluna í bæinn.
19. september Stolt okkar Siglfirðinga, Hólshyrnan sem bar þess greinilega merki að komið var haust, þó svo að oft á árum hafi maður séð hana skarta hvítari hatti á miðju sumri. En eins og þeir vita sem farið hafa á síðu mína að undanförnu, þá hefi ég ekki verið í bænum og gat ekki fylgst með fyrstu einkennunum, en snjó hefur að sögn ekki fest að gagni í byggð í þessu fyrsta hreti, en það litla sem kom á stökku stað ofarlega í byggðinni var farið aftur um hádegið sama dag. Og á leið minni norður sá ég víða meiri snjó á láglendi og fjöllum annarsstaðar en í okkar fjöllum, það gerir að líkindum nálægð við sjóinn sem enn er hlýr miðað við árstíma. Smellið á tengilinn „Morgun rúntur“ þá eru nokkrar myndir þar á "bak við" frá morgun rúnti mínum.
19. september Hvanneyraráin. Það var skrítin tilfinning að sjá Hvanneyrarána eins og sést á myndinni. Mér var bent á þetta áðan (11:15) en búið er að "stífla" ána þannig að stórgrýti var komið fyrir fyrst og síðan gerður vegur yfir til að vinnuvélar og fleira kæmist yfir á Hvanneyrarskálarveginn vegna framkvæmdanna þar og við væntanlega snjóvarnargarða. Þetta er gert til að hlífa Hólaveginum fyrir þungaakstri, sem nauðsynlegur er vegna framkvæmdanna. En mér dettur í hug: Hvernig mun þessari "stíflu" vegna í vor þegar áin er í vexti, kemst allur flaumurinn um stórgrýtið eða flæðir yfir? Ég hefi grun um að garðurinn standist ekki vorleysingarnar og dæmi er um að haustrigningarnar hafi valdið, ekki minna flæði í ánni en oft á vorin. Sver rör ca. 2 m í þvermál hefði verið æskilegra, nóg er til af slíkum "aflaga rörum" í firðinum, sem hefði mátt nota.
19. september 13:15 Síðustu pjásurnar. Bæjarstarfsmenn hlupu lafmóðir á eftir nokkrum rolloupjásum á túninu fyrir norðan hús mitt eftir hádegið. En þetta munu vera síðustu rollurnar sem finnast í bænum að þessu sinni, en nú um síðustu helgi fór fram allsherjarsmölun á þessum óboðnu gestum sem verið hafa ýmsum bæjarbúum til ama í sumar innan Siglufjarðar. Margir rollukarlar létu mig heyra það að þeir efuðust um að ég hefði talið svo mikinn fjölda er ég skýrði frá því í sumar að ég hefði talið 61 rollu eftir yfirferð á vegum innan fjarðarins. En smalamönnunum tókst þó að smala á milli 200-300 rollu tu.... að þessu sinni innan fjarðarins. En ýmis félagasamtök tóku að sér smölunina.
20. september "Hann setti svip á bæinn" Bjarni Bjarnason verkamaður, (kallaður Boddi Gunnars) fæddur 17. júlí 1921
20. september Það er mikið talað um að eldrafólkið sem vill flytja úr alltof stórri íbúð sinni á dvalarheimili, þar sem ellilaunin nægja ekki fyrir þeim kostnaði sem því fylgir að eiga íbúð eða hús og fleira sem til greina kemur, heilsubrestur og þ.h. - Þægilegt húsnæði eins og Elliheimili, td. SKÁLAHLÍÐ, þar sem öll þjónusta er á næstu grösum er góður kostur. Nokkrir eldri borgarar hafa átt kost á að flytja í "Gamla bakaríið" við Hvanneyrarbraut sem er í næsta nágrenni við Skálahlíð, en langur biðlisti mun vera um svona húsnæði fyrir eldra fólkið, hvort heldur er í Skálahlíð eða "bakaríinu". Mér var bent á hér á dögunum góða lausn, það er húsnæði í næsta nágrenni við SKÁLAHLÍÐ sem sennilega væri falt, en það er Hlíðarvegur 44. Þar voru einu sinni 4 íbúðir -og kunnugir telja að þar mætti gera a.m.k.5 litlar íbúðir án mikils tilkostnaðar. Og stóri kosturinn er: Þetta hús er nær fast við Skálahlíð. Hvernig væri að viðkomandi nefndarmenn athuguðu þennan möguleika?
20 september. Nýt á "Lífið á Sigló" Veðrið í DAG Smelltu á "Veðrið í dag" og þú sérð á mynd hvernig veðrið er á Sigló um hádegisbilið daglega. Hitastigið á hitamælir minn í Bakka (Hvanneyrarbraut 80) og áætlaður vindstyrkur og annað veðurútlit þeirrar stundar.Þessar myndir eru aðeins sýnishorn af því sem varð framhalið allt fram til ársins 2015 > En tímafrekt er að endur heimta allar slíkar myndir þar sem þær eru víða staðsettar á gamla vefnum þaðan sem þetta er fengið frá, það er Lífið á Sigló 2003
20. september Nýir rekstraraðilar að Bíóinu. (Frétt út Hellunni)
Undanfarið eitt og hálf ár hefur Guðrún Helga Jónsdóttir rekið Nýja-Bíó en nýlega varð að samkomulagi milli hennar og eigandans, Sparisjóðs Siglufjarðar að hún mundi hverfa frá rekstrinum. Nýir aðilar taka við rekstrinum upp úr næstu mánaðamótum samkvæmt upplýsingum frá Ólafi Jónssyni sparisjóðsstjóra.
Öll fréttin á tenglinum: „Nýja Bíó“
21. september "Þeir settu svip á bæinn"Læknarnir: Þórarinn Guðmundsson - og Halldór Kristinnson fæddur 20.ágúst 1889
21. september Díselolíugjald í stað þungaskatts. Athygliverð grein á www.siglo.is sem Guðjón M. Ólafsson sendi þangað inn 19. september 2003 - Þessa grein ættu allir að lesa sem huga að mismun á verðlagi almennra neysluvara á landsbyggðinni annarsvegar og "Bónus-svæðanna" á Reykjavíkursvæðinu ofl. hinsvegar. Smellið á tengilinn hér fyrir neðan og lesið greinina. http://www.siglo.is/new/?mode=umraedan&yid=71
Því miður finnst þessi grein ekki á vef Fjallabyggðar í dag árið 2015. Siglufjarðarkaupstaður var á þessum tíma með veffangið www.siglo.is þar sem greinin var birt.
21. september Veikar varnir ? Norðanáttin skall á okkur eins og aðra landsmenn samkvæmt "spánni" (aldrei þessu vant) Á flóðinu í morgun gekk sjór og meðfylgjandi á land við enda Túngötunnar, lítið magn og engar skemmdir, en það sást þó. Sveinn Þorsteinsson fréttaritari minn vaknaði fyrr en ég í morgun og tók þessa mynd.
21. september Lítilháttar flóð ásamt malarkurli og þara kom einnig upp á planið við Bensínstöðina.
21. september Þessi mynd er EKKI tekin í haustrigningu dagsins í dag heldur var hún tekin 29. ágúst 1992. Myndin er ekki vel skörp þar sem hún er tekin "frá" vídeóvél. En í framhaldi af hugleiðingum um stífluna í Hvanneyraránni, sem getið er um hér neðar á síðunni þá er þetta vísbending um það sem komið getur ef rignir hressilega eins og í ágúst 1992, en þá gerði norðan garra ekki ósvipað og er í dag.