17. nóvember "Hann setti svip á bæinn" Þórir Konnráðsson bakari, fæddur 10. júlí 1916
17. nóvember Saltað á Sigló (1964-1965(?))
17. nóvember FÉLAG ELDRI BORGARA, Siglufirði og Fljótum. Félagar héldu upp á 20 ára afmæli félagsins í Skálarhlíð í gær 16. nóvember. Hefðbundin veisla með kaffi og tertum, ræðum og söng. Fram komu, meðal annarra, nýstofnaður kvartett sem ekki á sér nafn ennþá og kór aldraðra á Siglufirði; Vorboðinn. Þar var ég einnig mættur (unglingurinn) og tók slatta af myndum, eins og fyrri daginn. Myndirnar HÉR
17. nóvember SÖGUFÉLAG SIGLUFJARÐAR. Ákveðið var á fundi í gær, sem haldinn var á kirkjuloftinu af frumkvæði Sigurðar Ægissonar sóknarprests að endurvekja Sögufélag Siglufjarðar, sem legið hefur í dvala um nokkuð langt skeið. Ákveðinn hefur verið formlegur fundur um málið næstkomandi sunnudag.
17. nóvember Hálfmáni yfir Siglunesi klukkan 22:22 í gærkveldi.
Hver á afmæli, í dag, á morgun eða næsta dag? Þeir sem vilja, vonandi sem flestir Siglfirðingar geta sent mér upplýsingar um afmælisdaga og ljósmynd af afmælisbarninu, ásamt smá kynningu á viðkomandi persónu. Persónurnar mega vera á öllum aldri allt frá fæðingu barna og til afmælisdaga frá 1ári - til yfir 100 ára.!!!
Frá fæðingu á ég við nýkominn í heiminn. Þessar upplýsingar munu verða birtar á sérstökum síðum: "Nýfæddir Siglfirðingar" og "Á afmæli í dag" -- þegar upplýsingar berast.
18. nóvember "Hún setti svip á bæinn" Ásta Einarsdóttir, fædd 14. maí 1928
"Taka tunnu" hrópuðu stúlkurnar í síldinni. Þessi maður, Jóhannes Hjálmarsson sá um það verk á Hafliðaplaninu um 1965
18. nóvember Nýfæddur Siglfirðingur. á árinu 2003 - Smellið HÉR
18. nóvember Fanneyjar Hafliðadóttur er 50 ára í dag. Fanney starfar hjá Leikskálum og fékk heimsókn leikskálakrakka. Börnin sungu afmælissönginn fyrir hana og fengu svo súkkulaðimola frá Fanneyju í kveðjugjöf.Mörg afmælisbörn á árinu 2003 má sjá HÉR
18. nóvember Sérkennilegur regnbogi yfir Siglunesi. Ekki sást til sólar klukkan 11:52 í hádeginu þegar þessi mynd var tekin. En þoku eða rigningarsuddi hékk "yfir" nesinu.
18. nóvember GSM sambandið á Siglufirði bætt. Landssíminn er að láta koma fyrir nýju GSM loftneti, nú staðsettu á stóra strompinum hjá gömlu ketilstöðinni (Síldarvinnslunnar). Eftir það ætti samband að batna og ég ofl. losnað við að hlaupa út á svalir til að geta ansað í GSM-símann þegar hringir. -- Á myndinni eru starfsmenn Landssímans, félagarnir Ólafur Sveinsson og Ragnar Gunnarsson, ekki lofthræddir. En samband hefur sumstaðar, sérstaklega inni í ýmsum húsum, verið afleitt. Smelltu HÉR til að sjá fleiri.
19. nóvember "Hann setti svip á bæinn" Hannes Sölvason, fæddur 6.janúar 1903
19. nóvember Sunnudaginn 9. nóvember var Fatahönnunarkeppni Grunnskólanna haldin í Kringlunni í Reykjavík. Frá Grunnskóla Siglufjarðar fóru 13 keppendur. Sjö úr 8.bekk, tvær úr 9.bekk og fjórar úr 10.bekk. Aðeins það að þær voru valdar til að sýna flíkurnar sínar gerði þær allar af sigurvegurum.
Engin verðlaun voru í keppninni í formi hlutar, þ.e.a.s. bikar og svoleiðis. Heldur unnum við: Kjóll í fjöldaframleiðslu: Pálína Dagný Guðnadóttir úr 9.bekk.
Þátttaka í Iceland Fashion Week í febrúar, þær fara sem hönnuðir:
Sigurbjörg Hildur Steinsdóttir, 10.b. Sunna Lind Jónsdóttir, 10.b. Pálína Dagný Guðnadóttir, 9.b. Stefanía Regína Jakobsdóttir, 8.b.
Þriðju verðlaun fyrir hár og förðun: Pálína Dagný Guðnadóttir, 9b. -- Ljósmynd: Guðný Erla Fanndal
19. nóvember Gallí Sigló. -- Ég leit þangað inn í dag og skoðaði hvað þær væru að gera. Þær voru á fullu við tilbúning, allskonar skrautmuna og tækifærisgjafa, hvort heldur til gjafa á jólum eða á öðrum tímum ársins. Allt eru þetta handunnir gripir. Smelltu HÉR til að skoða.
Steinkanturinn fyrir framan SR í smíðum, í ágúst 1962. Nirði við uppsláttinn eru Ásgeir Björnsson Siglunesi, Óskar Garðarsson og Geir Guðbrandsson, uppi á kantinum er Bjarni Bjarnason (Boddi)
19. nóvember 2003 Hann á afmæli í dag hann Ágrímur Finnur Antonsson og er orðinn 26 ára. Hann er sonur Antons Sigurbjörns og Pöllu. Ásgrímur hefur bróðurpart sinnar stuttu ævi unnið á netaverkstæðinu en er nýbyrjaður að vinna hjá Primex.
19. nóvember 2003 Aron og Sædís. Hvað eiga þessi nöfn sameiginlegt?
Skoðaðu myndirnar, þá kemstu að því.
Aron og Sædís eru nöfn á tveim bátum sem stunda línuveiðar frá Siglufirði, Þeir deila með sér aðstöðu til beitningar inni í þessu húsi, Húsi sem sinnt hefur mörgum hlutverkum um ævina. En útgerðum bátanna og aðaleigendur þeirra eru: = farðu á næstu myndir og skoðaðu drengina
Kjartan Jóhannsson
að beita fyrir Aron
Örnólfur Ásmundsson
að beita fyrir Sædísi
19. nóvember Hafliði Guðmundsson. Hver var þessi maður, sem á sér eina minnisvarðan, sem reistur hefur verið um einstakling á Siglufirði. það er til annar minnisvarði um merk hjón sem allir þekkja, séra Bjarna Þorsteinsson og frú, staðsettur í garði að Hvanneyri við Siglufjörð. En mér finnst alltof lítið hafa verið gert til að halda nafni þessa sómamanns á lofti, manns sem á sér stóran sess í sögu Siglufjarðar, mikið stærri en látið hefur verið í ljós með þeirri þögn og aðgerðarleysi sem raun ber vitni. En í tilefni af þeirri "100 ára" afmælishátíð sem í vændum er á næsta ári og ekki síst ef kóngafólkið norska sem sagt er að komi hingað í tilefni þessa atburðar, þá skrifa ég þetta. Ég tel að þáttur hans sem hreppstjóra, er fyrsta herpinótasíldin barst til söltunar á Siglufirði, þau embættisverk sem hann vann til að koma því í kring að leyfi fengist fyrir þessum aðgerðum erlendra aðila. Hann átti ekki hvað minnstan þátt í því að allt þetta gerðist á sínum tíma. Það er mjög fróðlegur kafli um persónuna Hafliða Guðmundsson hreppstjóra í bók Björns Dúasonar; Síldarævintýrið á Siglufirði - Og í lokin mætti minnast þess að hér í dag búa hér afkomendur þessa mikilmenni á meðal vor, fólk sem enn á heimilisfang hér á Siglufirði. - Björn Dúason kemst ma. svo að orði, í bók sinni: "Brátt gerðist Siglufjörður frægur. Og hann varð meira. Hann varð illræmdur. Hann eignaðist fjölda öfundarmanna, óvini og andstæðinga" Minnumst Hafliða veglega á afmælishátíðinni á næsta ári. Ragnar Arnalds mun minnast hans í leikriti er hann samdi og sagt hefur verið frá á síðu minni, en það er ekki nóg. - Steingrímur.
20. nóvember "Hann setti svip á bæinn" Ragnar Jóhannesson skattstjóri. fæddur 2. júní 1911
20. nóvember Hverjar eru hnáturnar? Þær voru að salta á Hafliðaplaninu um 1964
21. nóvember "Hún setti svip á bæinn" og gerir enn. Rósa Magnúsdóttir, fædd 20. desember 1924
21. nóvember Og enn er verið að salta ! Þessi mynd er tekin um 1964
21. nóvember Þessi mynd er tekin í gærkveldi inni á Videoval Þetta er eigandinn, Þórarinn Hannesson. En hann verslar með m.a. sælgæti, fatnað ofl og ennfremur leigir hann út Video og DVD myndir.
21. nóvember Opið hús föstudaginn 21. nóvember frá 14-16 OG 22. nóvember frá 11-15 í tilefni árs fatlaðra. Sýning á stórskemmtilegum munum er fatlaðir hafa unnið í Iðju dagvist. Margt góðra muna til jólahaldsins, ofl. Sjón er sögu ríkari, en ef þú smellir HÉR sérðu sýnishorn.
22. nóvember "Hún setti svip á bæinn" Steinunn Friðriksdóttir, fædd 17. júní 1907
22. nóvember Hverjar eru stúlkurnar? Hafliðaplanið 1965
22. nóvember Langt komið. Þeir hafa verið röskir drengirnir hans Bigga hjá Berg hf., við að þekja Bátahús Síldarminjasafnsins. Þarna hömuðust þeir í gær og létu ekki í rigningarsuddann hafa áhrif á sig, enda vel gallaðir
22. nóvember Hann er fimmtugur í dag, hann Þorleifur Halldórsson. Hjartans hamingjuóskir minn gamli góði vinur og vinnufélagi. - S.K..
23. nóvember "Hún setti svip á bæinn" Ásta Einarsdóttir, fædd 14. maí 1928
23 .nóvember Kvenfélag Sjúkrahúss Siglufjarðar 50 ára. Ég varð þess heiðurs aðnjótandi í gærkveldi að vera einn í 40-50 kvenna hóp, er þessar ötulu konur héldu upp á 50 ára afmæli félags síns sem í gegn um árin hefur safnað fé til gjafa vegna tækjabúnaðar og ýmsa annarra muna til Sjúkrahúss Siglufjarðar og einnig Skálarhlíðar, en upphæðirnar í gegn um árin skipta tugum miljóna. Smelltu HÉR til að lesa ávarpið. Og smelltu HÉR til að skoða 52 myndir sem ég tók á afmælishátíðinni. Myndin hérr af núverandi stjórn félagsins
23. nóvember "Landlega" 196? - Ljósmynd: Knútur Jónsson
23. nóvember Sögufélag Siglufjarðar endurvakið eftir um 30 ára svefn. Fundurinn var haldinn á Safnaðarheimilinu síðdegis í dag.
Félagið var endurvakið formlega og kosin ný stjórn. Stjórnina skipa: séra Sigurður Ægisson formaður, Jóna Kr. Ámundardóttir og Sigurður H Sigurðsson. Smelltu HÉR til að sjá myndir
23. nóvember Hingað til Siglufjarðar, komu í kvöld um kl. 19:00, Sænsku sendiherrahjónin í Reykjavík, þau Bertil Jobeus og kona hans Marie Luise. Þau munu dvelja hér á Siglufirði í 2 daga.Sænski konsúllinn Björn Jónasson tók á móti þeim. - Ég hitti þau upp úr klukkan 21:00 á Síldarminjasafninu, þar sem þeim var boðið upp á Íslenska síldarrétti ofl. ásamt því að skoða safnið. Þarna voru og mættir forseti bæjarráðs, Ólafur Kárason, safnvörðurinn Örlygur Kristfinnsson og makar.
Á myndinni eru, talið frá vinstri: Örlygur Kristfinnsson safnvörður, Guðný Róbertsdóttir, Ásdís Kjartansdóttir, Bertil Jobeus sendiherra og kona hans Marie Luise, Björn Jónasson sænskur konsúll á Siglufirði, Ólafur Kárason og Þórey Guðjónsdóttir.