Titill:
Bakkus og blanda
Lagboði:
Íslenskt þjóðlag
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Drykkjuvísur; árstíðirnar
Kvæði undir sama bragarhætti:
Brúðhjónabollinn berst að höndum mér - Upphaf:„Brúðhjónabollinn/ berst að höndum mér." Eftir Leirulækjar-Fúsa (f. 1648. d. 1748). Brúðkaupskvæði
Einum best eg unni - Upphaf: „Einum best eg unni/ er minn Jesús sá." Eftir síra Einar Sigurðsson í Heydölum (f. 1539. d. 1626).
Epithalamia - Upphaf: „Hjartkær hjónaefni/ hér nýtrúl0fuð." Eftir Gunnar Pálsson (f. 1714. d. 1791). Brúðkaupskvæði
Hatturinn og hún húfa - Upphaf:„Hatturinn og hún húfa/ hittust eina stund." Höfundur ókunnur(?) Drusla
Húuvísur - Upphaf: „Heiman ríður Húa/ og horfir upp í sól." Eftir síra Stefán Ólafsson í Vallanesi (f. 1619. d. 1688). Hér er Húa líklega hundur. Dýravísur.
Kær Jesú Kristi - Upphaf:„Kær Jesú Kristi."
Heimild/kvæðið á prenti:
Bakkus og blanda,
brauðið, kjöt og smjör
hér hjá mér standa
hamingjan forði mér.
Sárt og sultur ertir
og sérhver hörmungin
að ég ekkert snerti
einn í þetta sinn.
Hér ég reiðist það ég finn,
þú mig leiði freistnin inn
vissi heiður síðar sinn
sjálfur hreppstjórinn.