Dýravísur eftir Jón Steinsson Bergmann (f. 1696. d. 1719)
Fyrirsögn:
Dýravísur
Lagboði:
Íslenskt þjóðlag. Það sama og við Tunnan valt eftir Jón Þorláksson á Bægisá (f. 1744. d. 1819)
Höfundur:
Jón Steinsson Bergmann (f. 1696. d. 1719)
Kvæði undir sama bragarhætti:
Kvæðið er undir rímnahætti
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Hani, krummi, hundur, svín
hestur, mús, titlingur.
Galar, krunkar, geltir, hrín
gneggjar, tístir, syngur.
2. Verður ertu víst að fá
vísu gamli jarpur.
Aldrei hefur fallið frá
frækilegri garpur.
3. Þá var taða, þá var skjól
þá var fjör og yndi.
Þá var æska, þá var sól
Þá var glatt í lyndi.
4. Gefðu ungum gæðingum
gamla tuggu á morgnunum.
Launa þeir með léttfærum
lipru sterku fótunum
5. Verður ertu víst að fá
vísu gamli jarpur.
Aldrei hefur fallið frá
frækilegri garpur.
6. Hani, krummi, hundur, svín
hestur, mús, titlingur.
Galar, krunkar, geltir, hrín
gneggjar, tístir, syngur.