Titill:
Tunnan valt
Lagboði:
Íslenskt þjóðlag, það sama og sungið er við Dýravísur eftir Jón Steinsson Bergmann (f. 1696. d. 1719)
Höfundur:
Jón Þorláksson á Bægisá (f. 1744. d. 1819)
Kvæðagrein:
Hestavísur; Dýravísur; önnur danskvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Dýravísur - Upphaf: „Hani, krummi, hundur, svín." Eftir Jón Steinsson Bergmann (f. 1696. d. 1719)
Heimild/kvæðið á prenti:
Tunnan valt og úr henni allt
ofan í djúpa keldu.
Skulfu lönd en brustu bönd,
botngjarðirnar héldu.