(Til baka í íslensku skáldin og þjóðlögin)
Jón Steinsson Bergmann (f. 1696. d. 1719) var íslenskur stúdent og með allra fyrstu Íslendingum til þess að stundað nám í læknisfræði. Jón var sonur Steins Jónssonar (f. 1660. d. 1739) biskups á Hólum í Hjaltadal. Jón var oft kallaður Jón læknir en samkvæmt heimildum lauk hann aldrei prófi.
Við heimkomu til Íslands eftir óklárað nám bað hann Guðrúnar Aradóttur frá Sökku í Svarfaðardal en allt endaði það á versta veg, Guðrún giftist öðrum manni „lítils háttar" samkvæmt heimildum. Í kjölfarið sökk Jón í djúpt þunglyndi og tók hann inn eitur 4. febrúar árið 1719 og lést í kjallarabaðstofunni á Hólum sama dag. Gunnar Pálsson skólameistari á Hólum (f. 1714. d. 1791) eignar Jóni Dýravísur sem eru enn þann daginn í dag kunnar um allt land.
Kvæði eftir Jón Steinsson Bergmann með þjóðlögum:
Dýravísur - Upphaf: „Hani, krummi, hundur, svín."
Sumarósk - Upphaf: „Nú er komið nýja sumar tíðum." Lagboði: Séra Magnús settist upp á Skjóna