(Til baka í íslensku skáldin og þjóðlögin)
Leirulækjar-Fúsi (f. 1648. d. 1728). Hann hét fullu nafni Vigfús Jónsson. Hann fæddist á Leirulæk á Mýrum (Mýrasýslu). Hann var búlaus og „galinn" samkvæmt Jóni Espólín. Hann var sonur séra Jóns Ormssonar frá Kvennabrekku í Dölum. Snemma tóku menn eftir að hann var skáldmæltur mjög en einnig bar við að hann væri hrekkjóttur við fólk. Leirulækjar-Fúsi þótti einnig fjölkunnugur og um fjölkynngi hans má lesa í hinum og þessum þjóðsagnasöfnum. Hann orti brúðkaupsvísur, drykkjuvísur ofl.
Kvæði Leirulækjar-Fúsa með þjóðlögum:
Brúðhjónabollinn berst að höndum mér - Upphaf: „Brúðhjónabollinn/ berst að höndum mér." Brúðkaupskvæði.
Þótt ég drekki mér í mein - Upphaf: „Þótt ég drekki mér í mein." Drykkjuvísa.
Þjóðsögur um Leirulækjar-Fúsa þar sem þjóðlag kemur við sögu:
Af Fúsa og Sigurði dalaskáldi - Upphaf: „Gakktu fram á gýgjarstein."