Útilegumannavísur eftir Matthías Jochumsson. Kvæði við þennan bragarhátt eru t.d. Krúsarlögur kveikir bögur og Til Apollons.
Titill:
Lagboði:
Höfundur:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Enginn falli ærugalli - Upphaf: „Hún er fögur/ með fannakögur/ og fjallabrún." Eftir Grím Thomsen (f. 1820. d. 1806)
Krúsarlögur kveikir bögur - Upphaf: „Krúsarlögur/ kveikir bögur/ og kvæðin smá." Sagðar vera eftir Ólaf Einarsson prest og skáld í Kirkjubæ í Hróarstungu (f. 1573. d. 1651)
Til Apollons - Upphaf: „Um hvað biður/ óðarsmiður/ Apollín." Eftir síra Jón Þorláksson á Bægisá (f. 1744. d. 1819)
Tinda fjalla - Upphaf: „Tinda fjalla,/ áður alla/ undir snjá." Eftir Jónas Hallgrímsson (f. 1807. d. 1845)
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Blundar lúinn
byggðarmúgur
beðjum á,
fjallabúinn fer á stjá;
saman í hrúgum
sauðagrúann
sér hann til og frá,
síst þá sofa má.
2. Því um nætur
fer á fætur,
fjalla-sal
kveða lætur
„hó" og „hal";
nú skal kætast,
gálgi græta
garpa þeygi skal,
sundrum sauðaval.
3. Látum hnífa
hvassa stýfa
haus frá bol,
síðan rífum
sauði' á hol,
kinda lífi
lengi hlífa
léð oss ei er þol;
hverfi handaskol.