(Til baka í íslensku skáldin og þjóðlögin)
Jónas Hallgrímsson (f. 16. nóvember 1807. d. 26. maí 1845). Eitt ástsælasta ljóðskáld Íslendinga fyrr og síðar, orðsmiður og náttúrufræðingur. Hann fæddist að Hrauni í Öxnadal, nam í Kaupmannahafnarháskóla, datt niður stiga og lést af blóðeitrum sökum þess árið 1845. Dagur íslenskrar tungu er haldinn hátíðlegur ár hvert, 16. nóvember, en það er fæðingardagur Jónasar.
Ásta - Upphaf: „Ástkæra ylhýra málið / og allri rödd fegra". Sjá ástarkveðskap
Á gömlu leiði 1841 - Upphaf: „Fundanna skært í ljós burt leið". Sjá erfiljóð
Álfareiðin - Upphaf: „Stóð ég út í tunglsljósi". Sjá jólin
Borðsálmur - Upphaf: „Það er svo margt ef að er gáð". Sjá veislukvæði
Enginn grætur Íslending - Upphaf: „Enginn grætur Íslending". Sjá ástarkveðskap
Ferðalok - Upphaf: „Ástarstjörnu / yfir Hraundranga". Sjá ástarkveðskap
Ég bið að heilsa - Upphaf: „Nú andar suðrið sæla vindum þíðum". Sjá árstíðirnar
Dalvísur - Upphaf: „Fífilbrekka, gróin grund".
Fjallið Skjaldbreiður - Upphaf: „Fanna skautar faldi háum".
Grátittlingurinn - Upphaf: „Ungur var ég og ungir".
Heiðlóarkvæði - Upphaf: „Snemma lóan litla í".
Ísland farsældafrón - Upphaf: „Ísland! farsældafrón". Sjá ættjarðarkvæði og tvísöngva
Kveðja Íslendinga til séra Þorgeirs Guðmundssonar - Upphaf: „Nú er vetur úr bæ". Í Snót er titillinn þessi: „Kveðja til Þorgeirs Guðmundssonar vorið 1839".
Lítill leikur - Upphaf: „Hættu að gráta, hringaná".
Minni Íslands - Upphaf: „Þið þekkið fold með blíðri brá". Sjá ættjarðakvæði
Móðurmálið - Upphaf: „Ástkæra ylhýra málið".
Óhræsið - Upphaf: „Ein er upp til fjalla/ yli húsa fjær".
Réttarvatn - Upphaf: „Efst á Arnarvatnshæðum".
Saknaðarljóð - Upphaf: „Þá var ég ungur/ er unnir luku".
Söknuður - Upphaf: „Man ég þig mey/ er hin mæra sól". Sjá ástarkveðskap
Skjótt hefur sól brugðið sumri - Upphaf: „Skjótt hefur sól brugðið sumri".
Til herra Páls Gaimard - Upphaf: „Þú stóðst á tindi Heklu hám". Kvæði þetta er stundum einnig kallað Veizlukvæði, sbr. Snót.
Veit þá engi - Upphaf: „Veit þá engi, að eyjan hvíta". Sjá ættjarðakvæði
Vísur Íslendinga - Upphaf: „Hvað er svo glatt, sem góðra vina fundur". Sjá veislukvæði
Vorkvæði - Upphaf: „Tinda fjalla, áður alla".
Þorkell þunni - Upphaf: „Friðar biðjum Þorkeli þunna".
Kvæðin röðuð eftir upphöfum: