Fyrirsögn:
Heiðlóarkvæði; Heylóarvísa
Lagboði:
Lagið er erlent
Höfundur:
Jónas Hallgrímsson (f. 1807. d. 1845)
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Snemma lóan litla í
lofti bláu „dírrindí“
undir sólu syngur:
„lofið gæsku gjafarans!
grænar eru sveitir lands,
fagur himinhringur.
2. Ég á bú í berjamó,
börnin smá í kyrrð og ró
heima í hreiðri bíða;
mata ég þau af móðurtryggð,
maðkinn tíni þrátt um byggð
eða flugu fríða“.
3. Lóan heim úr lofti flaug,
(ljómaði sól um himinbaug,
blómi grær á grundu)
til að annast unga smá —
alla étið hafði þá
hrafn fyrir hálfri stundu.