Fyrirsögn:
Réttarvatn
Lagboði:
Lagið er erlent. Höf. Fr. Glück
Höfundur:
Jónas Hallgrímsson (f. 1807. d. 1845)
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Efst á Arnarvatnshæðum
oft hef ég fáki beitt.
Þar er allt þakið í vötnum,
þar heitir Réttarvatn eitt.
2. Og undir norðurásnum
er ofurlítil tó,
og lækur líður þar niður
um lágan Hvannamó.
3. Á engum stað ég uni
eins vel og þessum mér.
Ískaldur Eiríksjökull
veit allt, sem talað er hér.