Fyrirsögn:
Nú eftir fylgja söngvísur og kvæði til vors herra, Jesúm Kristum; Þegar minn dauði og dómur þinn
Lagboði:
Íslenskt þjóðlag úr tónlistarhandritinu Melódíu. Í einu handritinu stendur: „Ton og bragur sem fornqvæde" (ÍBR 86 4to)
Höfundur:
Ólafur Jónsson á Söndum (f. 1560. d. 1627)
Kvæðagrein:
Sálmar; Sagnadansar
Kvæði undir sama bragarhætti:
Óvíst, en eftirtalin fornkvæði (sagnadansar) eru undir keimlíkum bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Þegar minn dauði og dómur þinn
dettur á mig, ó Jesú minn.
Sjá þá til mín á síðan.
2. Dómurinn þinn
dettur á mig, ó Jesú minn.
Ó herra Kriste, huggunin mín,
sem harðan leiðst fyrir mig dauða og pín.
og sjá til mín á síðan.
3. Huggunin mín
sem harðan leiðst fyrir mig dauða' og pín.
Þörf er mín ströngust þegar að ég dey,
þín sé mér pína til forgefins ei,
Sjá til mín, Guð, á síðan.
4. Þegar að ég dey,
þín sé mér pína til forgefins ei.
Hvern dag grær mér um hjartans þel
hugargirnd sú, að deyja héðan vel,
Sjá til mín, Guð, á síðan.
5. Hjartans þel
hugargirnd sú að deyja héðan vel.
Hjálpin þín kemur mér vel jafnan við,
víslega þó seinast ég um hana bið.
Sjá til mín, Guð, á síðan.
6. Vel jafnan við,
víslega þó seinast ég um hana bið.
Þó stórliga sé ég nú staddur í neyð,
stend ég þó hættast í mínum deyð,
Sjá til mín, Guð, á síðan.
7. Staddur í neyð,
stend ég þó hættast í mínum deyð.
Yfir mig, drottinn, aumka þú þig,
þá allar verða skepnur að forláta mig.
Sjá til mín, Guð, á síðan.
8. Aumka þú þig
þá allar verða skepnur að forláta mig.
Yfir hafið rauða í forðum tíð
allan fluttir þú Ísraelslýð
Sjá til mín, Guð, á síðan.
9. Í forðum tíð
allan fluttir þú Ísraelslýð.
Mjög eins er þín makt volduglig
úr mótstreymu allri að frelsa mig,
Sjá til mín, Guð, á síðan.
10. Makt volduglig,
úr mótstreymu allri að frelsa mig.
Ljúfur þinn faðir til leiðtoga þig gaf,
lát mig ei sökkva í dauðans haf.
Sjá til mín, Guð, á síðan.
11. Til leiðtoga þig gaf,
lát mig ei sökkva í dauðans haf.
Í þínar hendur ég anda minn fel,
ó, minn ljúfi lausnari, geym þú mig vel,
Sjá til mín, Guð, á síðan.
12. Anda minn fel,
ó, minn ljúfi lausnari, geym þú mig vel.
Hvert sem ég lifi lengur eða skemur
líkna mér þegar mitt andlát kemur
Sjá til mín, Guð, á síðan.
13. Lengur eða skemur
líkna mér þegar mitt andlát kemur.
Soddan bæn ég set á minn fingur,
sé hún minn daglegur minnishringur,
Sjá til mín, Guð, á síðan.
14. Set á minn fingur,
sé hún minn dagligur minnishringur.
Að í þínum ótta andvaragjarn
áfram fari sem ljóssins barn,
Sjá til mín, Guð, á síðan.
15. Andvaragjarn
áfram fari sem ljóssins barn.
Láttu mig forðast lesti og mein
að leiða mig né aðra í vandræði nein,
Sjá til mín, Guð, á síðan.