Hildigunnur Valdimarsdóttir (1930-2017) fæddist árið 1930 í Teigi, Vopnafirði, Norður- Múlasýslu. Hún var dóttir Guðfinnu Þorsteinsdóttur, Skáld-Erlu (sjá um hana hér að framan) og systir Guðmundar Þorsteinssonar á Lundi. Hildigunnur ólst upp á miklu menningarheimili. Heimilislífið litaðist af söng, frásögnum um liðna tíð og gömlum ævintýrum. Móðirin, Guðfinna, orti ljóð og söng iðulega vísur fyrir börnin á Teigi. Söngurinn var vinsælt listform í gegnum hennar æsku og söng hún reglulega í guðsþjónustum í sinni sveit. Hildigunnur var einnig skáldmælt. Hildigunnur var og mikill náttúruunnandi, þótti einkar dugmikil í bláberjatínslu og barst sá kvittur víða um sveitir. Á ismus.is má finna ótrúlegt magn af þjóðlegum fróðleik úr fórum Hildigunnar. Hildigunnur lést sumarið 2017. Sagnadansarnir og vikivakaleikir sem Hildigunnur þekkti voru þessir:
a. Ásukvæði
c. Frísakvæði
d. Húfukvæði
e. Komdu til mín fyrsta kvöldið jóla
f. Konuríki (Það var eina jólanótt/vökunótt)
h. Prestkonukvæði
Hildigunnur Valdimarsdóttir frá Teigi í Vopnafirði