Húfukvæði er gamankvæði, flokkað með sagnadönsum og fjallar um blásnauðan mann nokkurn sem vill ekki selja kóngi sínum húfu sína. Kvæðið er mjög skylt hinu illa varðveitta Linda kvæði en bæði þessi kvæði líkjast mjög norska sagnadansinum sem ber heitið Beltevisa.
ÍFk númer:
ÍFk 92
VÓ númer:
VÓ 92
TSB númer:
Varðveisla á Ísl:
Mörg pappírshandrit og munnleg geymd fram á þennan dag
Fyrirsögn á íslensku:
Húfu kvæði
Húfan dýra
Fyrirsagnir á öðrum málum:
Lagboði:
Ísl. þjóðlag af vörum Guðfinnu Þorsteinsdóttur (Skáld-Erlu)
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Útgáfur:
Efni kvæðis:
Uppruni og aldur kvæðisins:
Meðhöndlun kvæðisins í tímans rás:
Athugasemd:
1. Eina húfu átti ég mér,
er hún úr prjónabandi,
veit ég enga vænni hér á landi.
2. Kóngurinn bauð mér hesta tvo,
þeir váru báðir hvítir.
Ei vild' eg mína húfu selja,
mér þóttu þeir ónýtir.
– Meiri gleði vænti eg mér af henni.
3. Kóngurinn bauð mér hesta tvo,
þeir voru báðir gráir.
Eig vild' eg mína húfu selja,
mér þóttu þeir smáir.
– Meiri gleði vænti eg mér af henni.
4. Kóngurinn bauð mér hesta tvo,
þeir váru báðir rauðir.
Ei vildð eg mína húfu selja,
mér þóttu þeir snauðir.
– Meiri gleði vænti eg mér af henni.
5. Kóngurinn bauð mér hesta tvo,
þeir voru báðir brúnir.
Eig vild' eg mína húfu selja,
mér þóttu þeir lúnir.
– Meiri gleði vænti eg mér af henni.
6. Kóngurinn bauð mér hesta tvo,
þeir váru báðir bleikir.
Ei vild' eg mína húfu selja,
mér þóttu þeir veikir.
– Meiri gleði vænti eg mér af henni.
7. Kóngurinn bauð mér hesta tvo,
þeir váru báðir skjóttir.
Ei vild' eg mína húfu selja,
mér þótti þeir hrekkjóttir.
– Meiri gleði vænti eg mér af henni.
8. Kóngurinn bauð mér sauði sín,
rekna saman í knappi.
Ei vild' eg mína húfu selja,
þá var ég kallaður glappi.
– En meiri gleði vænti eg mér af henni.
9. Kóngurinn bauð mér dóttur sín,
þá hina fögru mey.
En annað bauð mér skipið það,
sem skreið fyrir Skáney.
– Meiri gleði vænti eg mér af henni.
10. Þá kom einn gamall karl,
með sinn loðinn feld.
Hann bauð mér tvær síldir soðnar
og þá var húfan seld.
– En meiri gleði vænti eg mér af henni.