Fyrirsögn:
Um Ísalönd aukast nú vandræðin
Lagboði:
Sá sami og við Skipafregn
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Betlehems stjarna - Upphaf: „Heilög jól/ höldum í nafni krists." Eftir Jón Steingrímsson eldklerk (f. 1728. d. 1791)
Drengur, sem opt sníkti í búrið - Upphaf: „Gvendur minn/ gengur í búrið þrátt." Eftir síra Stefán Ólafsson í Vallanesi (f. 1619. d. 1688)
Lofið guð lofi hann hver sem kann - Upphaf: „Lofið guð/ lofi hann hver sem kann." Eftir síra Jón Þorsteinsson píslarvott (f. 1570. d. 1627)
Skipafregn - Upphaf: „Vorið langt/ verður opt dónunum." Eftir Árna Böðvarsson (f. 1713. d. 1776).
Um leiða síns föðurlands - Upphaf: „Er það satt,/ sem nokkrir telja mér." Eftir Eggert Ólafsson (f. 1726. d. 1768)
Heimild/kvæðið á prenti:
Um Ísalönd
aukast nú vandræðin,
fer í hönd
föstudagssulturinn;
fyrir því kvíða margur má
matbráður dóni
að ekki skulið þeir fæðu fá
frá fimmtudagsnóni
til laugardags,
lifandi nauða,
eg sé það strax
þeir svelta til dauða.
Annars lags
má leita við kauða,
að skammta þeim fullan skattinn sinn
áður en kirkju fara á fund,
svo fullur sé maginn,
og kreiki þeir svo með káta lund
á kóngsbænadaginn.