(Til baka í íslensku skáldin og þjóðlögin)
Árni Böðvarsson á Ökrum (f. 1713. d. 1776) var íslenskt skáld. Hann fæddist á Slítandastöðum í Staðarsveit. Árni varð stúdent úr Hólaskóla árið 1732. Árni bjó á Ökrum á Mýrum á efri árum og hefur hann jafnan verið kenndur við bæinn. Þó var hann aldrei talinn vera mikill búhöldur samkvæmt heimildum. Árni var einnig mikilvirt rímnaskáld og orti t.d. Brávallarímur. Árni var skólabróðir Gunnars Pálssonar (f. 1714. d. 1791) sem síðar varð skólameistari á Hólum. Þá var Árni frændi síra Snorra sterka Björnssonar á Húsafelli (f. 1710. d. 1803).
Kvæði eftir Árna með þjóðlögum:
Ég vildi að sjórinn yrði að mjólk - Upphaf: „Ég vildi að sjórinn yrði að mjólk,/ undirdjúpin að skyri." Drusla
Skipafregn - Upphaf: „Vorið langt/ verður opt dónunum." Sungið í tvísöng.