Fuglinn í fjörunni er barnagæla, dýraþula og þjóðvísa. Theodóra Thoroddsen (f. 1863. d. 1954) notaði þessa þjóðvísu í þulum sínum. Líklega hefur þulan upprunalega verið undir vikivakakvæðahætti, eins og Krumminn á skjánum og Hér er gott að dansa. Brot úr þulunni er einnig notað sem viðlag í Færeyjum við danskvæði um Gunnar á Hlíðarenda.
Fyrirsögn:
Fuglinn í fjörunni
Lagboði:
Íslensk þjóðlög. Sum þeirra líklega gömul vikivakalög
Höfundur:
Ókunnur. Þjóðkvæði
Kvæðagrein:
Barnagæla; Vikivakakvæði; Dýravísur; Þulur; Íslensk þjóðkvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Ef vildi Friggjan elda ósa - Upphaf: „Ef vildi Friggjan elda ósa." Vikivakakvæði
Enn eitt kvæðiskorn að kveða - Upphaf: „Hér er gott að dansa/ hér er stofan ný/ hún er öll tjölduð og þakin með blý." Vikivakakvæði
Eitt kvæði - Upphaf: „Mistekst ei af réttum Suptúngs hátt." Vikivakakvæði
Krumminn á skjánum - Upphaf: „Krumminn á skjánum/ kallar hann inn." Kvæði undir vikivakakvæðaháttum.
Heimild/kvæðið á prenti:
Viðlag: Fuglinn í fjörunni,
hann heitir már.
Silkibleik er húfan hans
og gult undir hár.
Er sá fuglinn ekki smár,
bæði digur og fótahár,
á bakinu svartur, á bringunni grár.
Bröltir hann oft í snörunni
– Fuglinn í fjörunni –
Fuglinn í fjörunni
hann er bróðir þinn.
– Ekki get ég stigið við þig stuttfótur minn.
________________________________
Útgáfa Jónínu Jónsdóttur frá Meiðavöllum í Kelduhverfi.
Fuglinn í fjörunni,
hann heitir már.
Silkibleik er húfan hans
og gult undir hár.
Er sá fuglinn ekki smár,
bæði digur og fótahár,
bakið blátt, brjóstið hvítt,
burt slapp hann úr snörunni
– Fuglinn í fjörunni.
Sambræðingur með erindi úr Titlíngs kvæði:
Viðlag: Fuglinn í fjörunni,
hann heitir már.
Silkibleik er húfan hans
og gult undir hár.
Á vorin situr hann efst í eikum,
ýtir saman kvistum bleikum
með fögrum söng og listileikum
leggst hann þá í hreiðrið sitt
kveði nú allir kvæðið mitt!
Útgáfa Sigurðar Runólfssonar:
Fuglinn í fjörunni
hann heitir már
silkibleik er húfan hans
og gult undir hár.
Fjaðraveikur flýgur um sker
bæði getur ei leitað sér
því hann er sár.
Silkibleik er húfan hans og gult undir hár.
Fuglinn í fjörunni
hann er bróðir þinn
ekki get ég stigið við þig
stuttfótur minn.