Eitt kvæði er vikivakakvæði varðveitt í handritinu AM148, 8, 328-329. bl.
Fyrirsögn:
Eitt kvæði/ Mistekst ei af réttum Suptúngs hátt
Lagboði:
Týndur. Tillaga að lagboða: Lag við Krummann á skjánum
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Vikivakakvæði; Vikivakar; Íslensk þjóðkvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Ef vildi Friggjan elda ósa - Upphaf: „Ef vildi Friggjan elda ósa." ÍGSVÞ bls. 170-172 (Lagboði sem Krumminn á skjánum).
Enn eitt kvæðiskorn að kveða - Upphaf: „Hér er gott að dansa/ hér er stofan ný/ hún er öll tjölduð og þakin með blý." ÍGSVÞ bls. 179. (Lagboði sem Krumminn á skjánum).
Krumminn á skjánum - Upphaf: „Krumminn á skjánum/ kallar hann inn." Þjóðkvæði og dýravísa.
Heimild/kvæðið á prenti:
Íslenzkir vikivakar og vikivakakvæði, 1894, bls. 169-170.
Viðlag: Vísu á eg að vanda
víst einga eg kann.
Falli þér heill til handa
heiðursmann.
1. Mistekst ei af réttum Suðtúngs hátt,
að semja nokkurn dýran þátt,
af ljóðasmiðunum lærði eg fátt
lof með nöðru sanda.
Vísu á eg að vanda.
Þig gæfan setji í heiðrinn hátt,
hægt sem verða kann.
Falli þér heill til handa
heiðursmann.
2. Vináttu hljóti vellaþór
og virðíng mesta' af dýrri þjóð;
hafni jafnan hugarins móð
hreytir Fofnis sanda.
Vísu á ef að vanda.
Hóglyndur við hölda' og fljóð,
hvern dag sýnist hann.
Falli þér heill til handa
heiðursmann.
3. Auðnan sé þér ætíð með,
innst af hjartans dygðum léð,
með guðrækninni að græða féð,
gistir heilags anda.
Vísu á eg að vanda.
Óspart hljóttu Ófnis beð,
en aldrei lukkubann.
Falli þér heill til handa
heiðursmann.
Óskar þess mín öndin hrein
þig auðnan styrki' í hverri grein,
ángursemi né önnur mein
aldrei megi þér granda.
Vísu á eg að vanda.
Læsi' eg aptur ljóðatein,
og lúkið kvæðarann.
Falli þér heill til handa
heiðursmann.