Enn eitt kvæðiskorn að kveða er vikivakakvæði varðveitt í handritinu Hrs. J. Sig. 257, 8. Viðlagið við þetta kvæði er einnig til í færeysku kvæði (Sjá Hammershaimb, Færösk Ant. I 1891, bls. 432). Lagboðinn er fenginn úr kvæðinu Krumminn á skjánum.
Fyrirsögn:
Enn eitt kvæðiskorn að kveða
Lagboði:
Týndur. Tillaga að lagboða: Lag við Krummann á skjánum
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Vikivakakvæði; Vikivakar; Íslensk þjóðkvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Ef vildi Friggjan elda ósa - Upphaf: „Ef vildi Friggjan elda ósa." Vikivakakvæði
Eitt kvæði - Upphaf: „Mistekst ei af réttum Suptúngs hátt." ÍGSVÞ bls. 169-170. Vikivakakvæði
Krumminn á skjánum - Upphaf: „Krumminn á skjánum/ kallar hann inn." Dýravísa undir vikivakakvæðahætti
Heimild/kvæðið á prenti:
Íslenzkir vikivakar og vikivakakvæði, 1894, bls. 179.
Viðlag: Hér er gott að dansa,
hér er stofan ný,
hún er öll tjölduð
og þakin með blý.
1. Hér hefi' eg fundið eitt herlegt sprund;
með heiðri prýdd á alla lund,
gæf og hýr er gullhlaðs grund,
með geðsemd gjörir að anza
Hér er gott að dansa.
Fátækur ei forðist sprund,
þótt fari um bý.
Hún er öll tjölduð
og þakin með blý.
2. Vöxtur hennar víst og skart,
vænt er fljóð og þar með bjart;
hún ber sín klæðin brigðu snart,
á gleði þarf ekki' að stanza
Hér er gott að dansa.
Athöfn hennar og önnur art
auðnan gjörvöll fylgi því.
Hún er öll tjölduð
og þakin með blý.
3. Heiðurs vífið hreppi sóma,
hér með allan veraldar blóma,
gefi þér Kristur gæfu fróma
og geymi þín frá vansa -
Hér er gott að dansa.
- undir Kristó, elsku blóma,
sem ætíð gjörir af syndum frí.
Hún er öll tjölduð
og þakin með blý.