Ef vildi Friggjan elda ósa er langt vikivakakvæði, alls 18 erindi, og er varðveitt í handritinu AM. 149, XV, 8, 1-3. bl. Kvæðið er líklega frá 17. öld.
Fyrirsögn:
Ef vildi Friggjan elda ósa (enginn titill)
Lagboði:
Týndur. Tillaga að lagboða: Lag við Krummann á skjánum
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Vikivakakvæði; Vikivakar; Íslensk þjóðkvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Enn eitt kvæðiskorn að kveða - Upphaf: „Hér er gott að dansa/ hér er stofan ný/ hún er öll tjölduð og þakin með blý." ÍGSVÞ bls. 179. (Lagboði: Krumminn á skjánum).
Eitt kvæði - Upphaf: „Mistekst ei af réttum Suptúngs hátt." ÍGSVÞ bls. 169-170. (Lagboði: Krumminn á skjánum).
Krumminn á skjánum - Upphaf: „Krumminn á skjánum/ kallar hann inn."
Heimild/kvæðið á prenti:
Íslenzkir vikivakar og vikivakakvæði, 1894, bls. 173.
Viðlag: Guð geymi blíða,
glaða auðslóð.
Lausnarinn lýðanna
líkni þér fljóð.
1. Ef vildi Friggjan elda ósa
af mér þiggja stökuna ljósa,
mundi bryggja máls því hrósa,
mærðar versið smíða.
Guð geymi blíða.
Að mun hyggja eðla rósa
illa þótt eg digti ljóð.
Lausnarinn lýðanna
líkni þér fljóð.