(Til baka í íslensku skáldin og þjóðlögin)
Björn M. Ólsen (f. 14. júlí 1850. d. 16. janúar 1919). Alþingismaður og fyrsti rektor Háskóla Íslands. Hann var málfræðingur og lagði einnig stund á menningarsögu. Stundaði mest rannsóknir á Sturlungu og Landnámu.
Björn var Húnvetningur, fæddist á Þingeyrum.
Björn lést 16. janúar 1919, ókvæntur og barnlaus.
Kvæði Björns með sönglögum:
Full Freyju - Upphaf: „Ó, Vanadís!/ Þú kveykir ástar eld og þíðir hjartans ís." Sjá Þorrablótskvæði
Full Þórs – í miðsvetrarblóti fornleifafjelagsmanna 1881 - Upphaf: „Nú heitum bræður að heiðnum sið/ á Þór!" Þorrablótskvæði frá árinu 1881. Kvæði undir sama bragarhætti: Evansmessa eftir Sigurð Pétursson (sjá Snót, bls. 164-166).
Vér heitum á þann mæta mann - Upphaf: „Vér heitum á þann mæta mann." Sjá jólin
Þegar hnígur húm að þorra - Upphaf: „Þegar hnígur húm að þorra/ oft ég hygg til feðra vorra." Björn M. Ólsen orti og Hannes Hafstein (f. 1861. d. 1922). Sjá Þorrablótskvæði.