Evansmessa er drykkjuvísa, líklega úr leikriti, eftir Sigurð Pétursson (f. 1759. d. 1827) sýslumann og leikritaskáld.
Fyrirsögn:
Evansmessa
Lagboði:
Líklega erlent lag
Höfundur:
Sigurður Pétursson (f. 1759. d. 1827) sýslumaður og leikritaskáld
Kvæðagrein:
Drykkjuvísur; Kveðskapur úr leikritum
Kvæði undir sama bragarhætti:
Full Þórs - Upphaf: „Nú heitum bræður að heiðnum sið/ á Þór!". Eftir Björn M. Ólsen (f. 1850. d. 1919). Þorrablótskvæði.
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Æ, nú er gaman og gleði á ný,
hell á,
því Evan stólinn vill stíga í,
hell á;
kórdjáknar hans skulu hraðir byrja,
með hárri gloría röddu kyrja.
Drekk út, skenktu aptur,
tæm staupið, skenk aptur,
drekk út.
2. Hann stóll er klárum af kristalli,
hell á,
og hans er gaman að guðspjalli,
hell á:
hvern sem hér þyrstir, hann dropann drekki,
djarft komi til mín, hann kostar ekki.
Drekk út, skenk aptur,
tæm staupið, skenk aptur,
drekk út.
3. Og exordíum var ærið gott,
hell á;
hann synda talaði' um trúan þvott,
hell á;
mín sól rennur eins yfir alla,
auðga, fátæka, samt börn og kalla.
Drekk út, skenk aptur,
tæm staupið, skenk aptur,
drekk út.
4. Útlegging þótti mér einka bezt,
hell á;
að henni gaum skulum gefa mest,
hell á;
hann öllum kærleikann kendi bera,
og kvað hann boðorðafylling vera.
Drekk út, skenk aptur,
tæm staupið, skenk aptur,
drekk út.
5. Hann og ég katekísera sá,
hell á;
í hverju atriði lærdómur lá,
hell á;
hann mælti: af vinur vín er dregið;
eg veit, að þér allir amen segið.
Drekk út, skenk aptur,
tæm staupið, skenk aptur,
drekk út.
6. En djáknar sátu á breiðum bekk,
hell á;
útgöngusálmurinn glaðast gekk,
hell á;
þeir barkann smyrja og brent vín súpa,
á báða hnjákolla niður krjúpa.
Drekk út, skenk aptur,
tæm staupið, skenk aptur,
drekk út.
7. Og heiðrum Evan á hæsta trón,
hell á;
hann skapar gaman og skerpir sjón,
hell á;
í krapti látum oss andans alla
þann æðsta gleðinnar föður ákalla.
Drekk út, skenk aptur,
tæm staupið, skenk aptur,
drekk út.
8. En vér, sem erum hans sóknarhjú,
hell á;
og höfum Evani heitið trú,
hell á,
gjörv-allir skulum vér greitt út hringja
og glösum skúmandi saman klingja.
Drekk út, skenk aptur,
tæm staupið, skenk aptur,
drekk út.