(Til baka í íslensku skáldin og þjóðlögin)
Sigurður Pétursson (f. 1759. d. 1827) var sýslumaður fyrir Gullbringu- og Kjósarsýslu en einnig mikilvirt leikritaskáld. Stundum er hann kallaður „faðir íslenskrar leikritunar" en hann samdi leikritin Narfa og Hrólf fyrir Herranótt Hólavallaskóla sem naut mikilla vinsælda. Sigurður var sýslumaður í nokkur ár líkt og sagt var hér að framan en sagði sig úr embætti árið 1803 sökum heilsubrests.
Kvæði eftir Sigurð Pétursson með sönglögum:
Evansmessa - Upphaf: „Æ, nú er gaman og gleði ný,/ hell á". Drykkjuvísa. Mögulega er þetta kvæði fengið úr einhverju leikriti hans. Skoða nánar.
Trúarjátning - Upphaf: „Þrennt ég trúi og treysti á."