Full Þórs - í miðsvetrarblóti fornleifafjelagsmanna 1881 er þorrablótskvæði eftir Björn M. Ólsen (f. 1850. d. 1919).
Fyrirsögn:
Full Þórs – í miðsvetrarblóti fornleifafjelagsmanna 1881
Lagboði:
Lagboðinn er sá sami og notaður er við Evansmessu eftir Sigurð Pétursson (f. 1759. d. 1827) sýslumann og leikritaskáld.
Höfundur:
Björn M. Ólsen (f. 1850. d. 1919)
Kvæði undir sama bragarhætti:
Evansmessa - Upphaf: „Æ, nú er gaman og gleði ný,/ hell á". Eftir Sigurð Pétursson (f. 1759. d. 1827) sýslumann og leikritaskáld. Drykkjuvísa. Mögulega er þetta kvæði fengið úr einhverju leikriti hans. Skoða nánar.
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Nú heitum bræður að heiðnum sið
á Þór!
Hann fjelagi voru leggi lið -
og bjór,
og auðgi safnið að eigum fornum -
en einna mest þó að drykkjarhornum!
Nú súpum og syngjum
og syngjum og súpum
í botn!
2. Hann reki ísinn og annað grand
á burt,
og láti hvalina hlaupa' í land
á þurt!
Með austanpósti þú átt að senda
oss atgeir Gunnars á Hlíðarenda.
Nú súpum og syngjum
og syngjum og súpum
í botn.
3. Og flókna lögbergis gátu greið
þú skjótt!
Af hofum fornum og haugum leið
oss fljótt!
Og gefðu safninu hamarinn harða
og heiðið afl þinna megingjarða.
Nú súpum og syngjum
og syngjum og súpum
í botn.
4. Nú drekkum freyðandi fulla skál
af bjór!
Og heitum þambandi þyrstri sál
á Þór!
En hver sem ei tæmir, hann skal þoka
og hafa bekk með Útgarðaloka.
Nú súpum og syngjum
og syngjum og súpum
í botn.