Andrea Pálína Jónsdóttir (1902-1990) fæddist á Ásmundarstöðum, Melrakkasléttu í janúar árið 1902. Hún var húsfreyja í Leirhöfn í sömu sveit mestan hluta ævi sinnar. Andrea stýrði heimilinu á Leirhöfn með glæsibrag og var það mál manna hvergi fyndist þvílíkur rausnarskapur eins og hjá Andreu. Allir fengu inni á Leirhöfn sem vildu og yfirleitt var eldhúsborðið stappfullt af kræsingum. Leirhöfn var mikið menningarheimili og voru þau hjón, Andrea og Helgi, gífurlegir bókasafnarar. Bókasafn þeirra hjóna taldi 16.000 bindi og geymdu þau rímnabækur sínar í hjónaherberginu. Sigurður batt inn bækur og Andrea miðlaði fróðleiknum til vina og afkomenda. Andrea lést sumarið 1990. Andrea kunni talsvert af sagnadönsum og vikivakaleikjum sem hún lærði af móður sinni. Þau eru þessi:
a. Ásu kvæði
b. Draumkvæði (Stjúpmóðurkvæði)
c. Frísakvæði
Andrea Pálína Jónsdóttir
Helgi og Andrea á Leirhöfn á gamals aldri
Helgi og rímnabækurnar í svefnherbergi þeirra hjóna á Leirhöfn