Fyrirsögn:
Vetrarvísur
Lagboði:
Íslenskt kvæðalag, það sama og notað var við Gaman og alvara eftir síra Hallgrím Pétursson (f. 1614. d. 1674)
Höfundur:
Sigríður Hallgrímsdóttir (enn á lífi árið 1750)
Kvæðagrein:
Árstíðirnar
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
Farin er fold að grána
fölin byrgir skjána
klaki er komin í ána,
kólnar yfir tána,
leggur ís yfir lána,
líða tekur á mána,
hvenær skal hann skána,
skipta um og hlána.
Kólna kærleiksbólin,
kveinar margur dólinn,
fýkur í flestöll skjólin
fölnaður sumarnjólinn,
týnd eru trúi ég jólin,
tekst af messurólin,
sést ei heldur sólin,
sár er reynsluskólinn.