Jólnasumbl er vikivaki eftir Grím Thomsen (f. 1820. d. 1896)
Fyrirsögn:
Jólnasumbl
Lagboði:
Sama lag og við Máninn hátt á himni skín
Höfundur:
Grímur Thomsen (f. 1820. d. 1896)
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Á Þorláksmessu - Upphaf: „Löng er nótt en ljósin björt/ langt fyrir ofan ský." vikivakadans. Dansað á Þorláksmessu. Sjá jóladansa.
Inni Kári sat í sal - Upphaf: „Inni Kári sat í sal/ silkiklæðin bar." Eftir Indriða Einarsson (f. 1851. d. 1939). Sjá jóladansa.
Máninn hátt á himni skín - Upphaf: „Máninn hátt á himni skín." Eftir Jón Ólafsson ritstjóra (f. 1850. d. 1916). Sjá jólin
Óluvukvæði - Upphaf: „Góða veislu gjöra skal." Þetta lag er líklega færeyskt eða danskt að uppruna. Sjá jóladansa.
Heimild/kvæðið á prenti:
(Lagboði: Máninn hátt á himni skín)
1. Í heiðnum og í helgum sið,
á horfnri og nýrri öld,
ýtar hafa haldið
heilagt jólakvöld.
– Góðri glaðir á stund
gjalla látum róm,
skæran yfir skammdeginu
skáladóm.
2. Það er ekki þar með nóg;-
þursa og álfa drótt
og dvergaher í holtum
halda jólanótt.
– Góðri glaðir á stund
gjalla látum róm,
skæran yfir skammdeginu
skáladóm.
3. Vatna glærum úti á ís
álfar halda leik,
tungls þeir tína geisla
til að snúa í kveik.
– Góðri glaðir á stund
gjalla látum róm,
skæran yfir skammdeginu
skáladóm.
4. Í hólum standa búin borð
björtum dúk úr gljá,
og morgundaggar mjöður
minnstu skeljum á.
– Góðri glaðir á stund
gjalla látum róm,
skæran yfir skammdeginu
skáladóm.
5. Dvergur séra í Dvergastein
dvergum bíður heim;
þeir svara holt af holti
hátt og draga s-e-i-m.
– Góðri glaðir á stund
gjalla látum róm,
skæran yfir skammdeginu
skáladóm.
6. Vafurlogar lýsa þeim
lystugt yfir mó,
og hrævareldar hrökkva
hrauns úr hverri þró.
– Góðri glaðir á stund
gjalla látum róm,
skæran yfir skammdeginu
skáladóm.
7. Þá er glatt í gýgjarsal
galdra kyrjað lag,
-leikur foss á langspil
„Litla tröllaslag.“
– Góðri glaðir á stund
gjalla látum róm,
skæran yfir skammdeginu
skáladóm.
8. Skessur dansinn stíga stórt,
slitnar lindi og traf,
en í faldafeyki
fer þó gamanið af.
– Góðri glaðir á stund
gjalla látum róm,
skæran yfir skammdeginu
skáladóm.
9. Fósturjörðin fagurt mun
falda líka í kvöld,
milli fjalls og fjöru
fanna þenja tjöld.
– Góðri glaðir á stund
gjalla látum róm,
skæran yfir skammdeginu
skáladóm.
10. Stjarnan vísar vættum lands
veg til hásætis,
og Fjósakonur kveikja
kertum fegri blys.
– Góðri glaðir á stund
gjalla látum róm,
skæran yfir skammdeginu
skáladóm.
11. En norðurljósin láta sinn
loftið sópa vönd;
sú mun björtust brenna
blossa yfir lönd.
– Góðri glaðir á stund
gjalla látum róm,
skæran yfir skammdeginu
skáladóm.
12. Af því myrkrið undan snýr,
ofar færist sól,
því eru heilög haldin
hverri skepnu jól.
– Góðri glaðir á stund
gjalla látum róm,
strangan yfir styztum degi
staupadóm.
stóradóm.
13. Nú er jólna sopið sumbl,
sálminn lýk ég við.
Ef drykkurinn er daufur,
drósir, forlátið.
– Slítum mjaðar ei mót,
meðan blundar sól;
enginn veit, hvort aftur hittumst
önnur jól.
Kvæði: Grímur Thomsen
Lag: Færeyskt/íslenskt þjóðlag