Gísli Brynjólfsson er erfiljóð eftir Bjarna Thorarensen (f. 1786. d. 1841). Þetta kvæði var sungið í Bessastaðaskóla. Þetta er erfiljóð um síra Gísla Brynjólfsson (f. 1794. d. 1827), prest í Eydölum, sem drukknaði á Reyðarfirði. Gísli þessi var „mesti gáfu-, og lærdómsmaður, góðmenni og vinsæll mjög."
Fyrirsögn:
Gísli Brynjólfsson
Lagboði:
Það sama og við Tittlings minning eftir síra Jón Þorláksson á Bægisá (f. 1744. d. 1819). Það lag hefur líklegast verið danskt þjóðlag sem notað var við Nyd livets korte morgenrøde eftir Rasmus Frankenau (f. 1767. d. 1814).
Höfundur:
Bjarni Thorarensen (f. 1786. d. 1841)
Kvæðagrein:
Erfiljóð; Skólasöngvar
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Föðurlandshlíða beltin bláu,
sem blikið demöntum móti sól,
og lifandi kristallslindir smáu,
lykkjaðar kringum bala og hól,
og yðar systur, Ægis þar
alsilfurstyptu dæturnar,
2. Á yður sömu eg augum starði,
sem yngissveinn á festarsprund,
en mig þann tíma ekki varði
Öfjörðs og Gísla banastund;
föðurlands kæru unnir, ár,
ætt minni tvö þér slóguð sár.