Fyrirsögn:
Sof þú blíðust barnkind mín
Lagboði:
Guðmundur Davíðsson þjóðlagasafnari fékk þessa vísu og þjóðlagið frá konu á Þúfnavöllum í Hörgárdal. Bjarni Þorsteinsson birtir kvæðið og lagið í Íslenzkum þjóðlögum sínum.
Höfundur:
Ókunnur; þjóðkvæði
Kvæðagrein:
Barnagælur; Íslensk þjóðkvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Óvíst. Vikivakakvæðaháttur? Líkist nokkuð fornkvæðinu Hökulsmokkskvæði
Heimild/kvæðið á prenti:
Efni kvæðis:
Kvæðið er vöggukvæði. Kvæðið er nokkuð trúarlegt og minnir á vögguljóð gyðinga.
Sof þú blíðust barnkind mín
byrgðu aptur augun þín
friðarins Guð þér frelsi bjó
fyrir það sofð′ í góðri ró
– dreymi þig Drottin dýrðarhæstan og dillidó.
_______________________________________
Aths: svipaður bragarháttur og Hökulsmokkskvæði?
Hér býr einn bóndinn upp með á
– í pansara og í plátu –
veglegar á sér dætur þrjár
– í skusseli og með skútinn breið.
Með hökulsmokkinn, vopnarokkinn, hann burt reið.