(Til baka í íslensku skáldin og þjóðlögin)
Ketill Bjarnason - (f. 1707. d. 1744). Prestur og austfirskt skáld. Var „allvel skáldmæltur." Var prestur fyrst á Hjaltastað (1732-1735), missti þann stað sökum barneignar og gerðist að lokum prestur á Eiðum (1739-1744). Honum eru eignuð kvæðin Gortaraljóð og Næturgistingarsálmur en þau hafa ranglega verið eignuð síra Stefáni Ólafssyni í Vallanesi (f. 1619. d. 1688).
Kvæði eftir Ketil Bjarnason:
Gortaraljóð - Upphaf: „Í húsi einu heyrði eg tal/ þar hýrt var inni mannaval."
Næturgistingarsálmur - Upphaf: „Mig bar/ að byggðum seint á degi."