Eitt sinn á gólfi kveðið er vikivakakvæði. Kvæðið birtist á prenti í Íslenzkum gátum, skemtunum, vikivökum og þulum. Lagboði við kvæði hefur varðveist, sem er íslenskt þjóðlag, og Bjarni Þorsteinsson birtir það í Íslenzkum vikivakalögum og öðrum íslenzkum þjóðlögum (1929).
Fyrirsögn:
Eitt sinn á gólfi kveðið
Lagboði:
Óvíst. Þó hefur íslenskt þjóðlag verið notað sem fengið er úr kvæðinu Upp líttu sál mín, og umsjá þig vel eftir síra Ólaf Jónsson á Söndum (f. 1560. d. 1627)
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Langvíubragur - Upphaf: „Langvíinn hefir þann listanna brest". Sjá dýravísur
Upp líttu sál mín og umsjá þig vel - Upphaf: „Upp líttu sál mín og umsjá þig vel". Eftir síra Ólaf Jónsson á Söndum (f. 1560. d. 1627).
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Þó að ég gangi á gólfið fram
og gjöri mér kátt
Hæverskt fólk í húsi þessu inni
bið ég það virða á bestan hátt.
2. Gjarnan vildi' eg góðum til vilja
gjöra sem flest,
og leiða svo fram lífsins æfi mína,
sem guði og mönnum geðjast best.
3. Valla má ærlegum vináttubónum
veita nei,
því eg vildi þéna hvers manns sinni,
víst í góðu' en vondu ei.
4. Margan prýðir mjúk viðfeldnin
mannúðlig,
en trélegleikur tálmar góðu stundum.
Hóf er þó best á hvörju um sig.
5. Óbreytt kvæðið eg þér valdi,
ágætt fljóð.
Sú er mín bón af sönnum hjartans rótum,
að öll verði þín ævin góð.