(Til baka í íslensku skáldin og þjóðlögin)
Ásdís Bárðardóttir (f. um 975) var húsfreyja á Bjargi og móðir Grettis sterka Ásmundarsonar.
Kvæði eftir Ásdísi með þjóðlögum:
Mundut síðr en sauðir - Upphaf: „Mundut síðr en sauðir/ Sýrar gráps fyr dýri." Dróttkvæð vísa úr Grettis sögu. Guðmundur Þorsteinsson frá Lundi (f. 1901. d. 1989) syngur kvæðið á segulband fyrir þjóðfræðinga árið 1967. Hann var ættaður af Austfjörðum, bróðir Guðfinnu Þorsteinsdóttur, Skáld-Erlu.