(Til baka í íslensku skáldin og þjóðlögin)
Sæmundur Eyjólfsson (f. 10.janúar 1861. d. 18. maí 1896) var íslenskt skáld, guðfræðingur og ráðanautur. Hann fæddist á Hvammi í Hvítársíðu en gerðist síðar bóndi í næstu sveit, á Rauðsgili í Hálsasveit. Eftir hann eru tvö allþekkt kvæði, Nú er glatt í hverjum hól og Tendra látum ljósa fjöld.
Sæmundur nam búfræði hjá Torfa í Ólafsdal og gekk í Latínuskólann í Reykjavík.
Kvæði eftir Sæmund Eyjólfsson:
Nú er glatt í hverjum hól - Upphaf: „Nú er glatt í hverjum hól." Sjá jólin.
Tendra látum ljósa fjöld - Upphaf: „Tendra látum ljósa fjöld." Lagboði: Borðsálmur eftir Jónas Hallgrímsson (f. 1807. d. 1845). Á Þorláksmessu