Ketát er gamanvísa eftir síra Stefán Ólafsson í Vallanesi (f. um 1619. d. 1688)
Fyrirsögn:
Ketát
Lagboði:
Íslenskt þjóðlag, það sama og notað er við Grýlukvæði eftir Björn Ólafsson frá Hrollaugsstöðum í Hjaltastaðaþinghá (f. 1802. d. 1866)
Höfundur:
Stefán Ólafsson í Vallanesi (f. 1619. d. 1688)
Kvæði undir sama bragarhætti:
Gunna það verk vann - Upphaf: „Gunna það verk vann,/ er Valdi hlaut af gjald." Eftir síra Stefán Ólafsson í Vallanesi (f. um 1619. d. 1688)
Heimild/kvæðið á prenti:
Gunnarsson ket kann
að kokka við sinn arnstokk,
baulu gerði skjót skil,
skar hana og ærnar;
á kræsingar er karl fús,
kukkaði út heitt jukk,
spratt hann upp frá spaðsrétt
og sprangaði út á húsgang.