Fjara við Vindfell í Vopnafirði
Fjara við Vindfell í Vopnafirði
(Til baka í íslensku skáldin og þjóðlögin)
Björn Ólafsson frá Hrollaugsstöðum í Hjaltastaðaþinghá (f. 1801. d. 7. júlí 1866) fæddist á Vindfelli í Vopnafirði. Hann gerðist bóndi að Hrollaugsstöðum í Hjaltastaðaþinghá. Björn var hagmæltur, orti einhverjar rímur og lausavísur, en athyglisverðast er Grýlukvæði hans sem hann yrkir undir fornyrðislagi (upphaf: Nú er á skemmtun skortur ei lítill). Björn hefur einnig líklega ort Rímur af Nikulási Tellmann.
Kvæði eftir Björn Ólafsson með varðveittum þjóðlögum:
Grýlukvæði - Upphaf: „Nú er á skemmtun/ skortur ei lítill." Grýlukvæði