Fyrirsögn:
Lóan er komin
Lagboði:
Höfundur:
Páll Ólafsson (f. 1827. d. 1905)
Kvæði undir sama bragarhætti:
Enn er ég sestur á Blesótta blakkinn - Upphaf: „Enn er ég sestur á blesótta blakkinn." Eftir síra Ólaf Indriðason á Kolfreyjustað (f. 1796. d. 1861)
Íslands minni - Upphaf: „Þú nafnkunna landið sem lífið oss veitir." Eftir Bjarna Thorarensen (f. 1786. d. 1841)
Heimild/kvæðið á prenti:
Lóan er komin að kveða burt snjóinn,
að kveða burt leiðindin, það getur hún.
Hún hefur sagt mér að senn komi spóinn,
sólskin í dali og blómstur í tún.
Hún hefur sagt mér til syndanna minna,
ég sofi of mikið og vinni ekki hót.
Hún hefur sagt mér að vaka og vinna
og vonglaður taka nú sumrinu mót.