Reiðvísa er hestavísa eftir síra Jón Þorláksson á Bægisá (f. 1744. d. 1819)
Fyrirsögn:
Reiðvísa
Lagboði:
Íslenskt þjóðlag, það sama og við Það mælti mín móðir, Taflvísur eftir síra Stefán Ólafsson í Vallanesi (f. 1619. d. 1688) o.fl.
Höfundur:
Jón Þorláksson á Bægisá (f. 1744. d. 1819)
Kvæðagrein:
Hestavísur; Eddukvæði og dróttkvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Hér í vörum heyrist bárusnari - Upphaf: „Hér í vörum heyrist bárusnari." Huldarmál úr þjóðsögu. Bragarháttur: Dróttkvæð háttleysa
Taflvísur - Upphaf: „Fallega spillir frillan skollans öllu/ frúin sú sem þú hefur nú að snúa." Taflvísa eftir síra Stefán Ólafsson í Vallanesi (f. 1619. d. 1688). Bragarháttur: Dróttkvæð háttleysa.
Heimild/kvæðið á prenti:
Þyt leit ég fóthvatan feta,
fold, hark, en mold sparkið, þoldi;
grjót fauk, því gat vakur skotið,
gekk tíðum þrekkhríð á rekka;
rauk straumur, ryk nam við himin,
rétt fór og nett jór á spretti;
ei sefast ákafalífið,
öll dundu fjöll, stundi völlur