Vigfús Thorarensen er erfiljóð eftir Bjarna Thorarensen (f. 1786. d. 1841) Hér yrkir Bjarni erfiljóð um föður sinn Vigfús Thorarensen Þórarinsson (f. 1756. d. 1819). Þjóðlagið við þetta kvæði er talið mjög fornt, skylt þjóðlaginu við Það mælti mín móðir eftir Egil Skalla-Grímsson
Fyrirsögn:
Vigfús Thorarensen
Lagboði:
Íslenskt þjóðlag
Höfundur:
Bjarni Thorarensen (f. 1786. d. 1841)
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Hælislaus á hóli
hrísla stend ég sendnum,
autt á allar síður
er fyrir stormi og frerum:
síðan mæta meiðinn,
mér sem reyndist verja,
sótti sá er átti,
að setja í jarðveg betri.
2. Enn er mér í minni,
minn þegar hinsta sinni
föður ég fann á láði
og föður viðskildi;
mjöllu frá landnorðri leiddi
í lopti frera-stormur
móðurlands brá yfir breiða
og byrgði fyr sólu.
3. Enn er mér í minni,
minn þá síðast fann ég
föður lífs á láði,
og leit hann ei síðan;
æfi hans jörðu yfir
eptir liðu þá nætur
þrjár, en þegar kom fjórða
þá nákaldur lá hann.
4. Saman síðast í heimi
sonur og faðir gistum
vænsta í húsum vinar
og vildum að morgni
leita brott um brautir . . . . . . . . . .
(Endir)