(Til baka í íslensku skáldin og þjóðlögin)
Egill Skalla-Grímsson (f. um 910) var bóndi, víkingur og eitt frægasta skáld sögualdar.
Egill er ein þekktasta persónan í Íslendingasögunum. Hann rak ættir sínar til eynnar Hrafnistu í Noregi og um það er fjallað í svokölluðum Hrafnistumannasögum. Hann átti í útistöðum við Eirík blóðöx og Gunnhildi drottningu, gekk til liðs við Aðalstein konung í Bretlandi og fékk að lokum frá honum mikinn silfursjóð að gjöf (silfur Egils).
Fjöldamörg kvæði hafa varðveist eftir Egil og eru þau flest varðveitt í Egils sögu.
Snorri Sturluson er talinn hafa samið Egils sögu.
Kvæði eftir Egil með þjóðlögum:
Það mælti mín móðir - Upphaf: „Það mælti mín móðir/ að mér skyldi kaupa." Dróttkvæð vísa