Fyrirsögn:
Samkvæmisvísur
Lagboði:
Erlent lag, Amor bachus, kom er ned.
Höfundur:
Bjarni Thorarensen (f. 1786. d. 1841)
Kvæðagrein:
Veislukvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Karlaraup - Upphaf: „Ungur þótti eg með söng/ yndi vekja í sveina glaumi." Eftir sama höfund
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Ekki er hollt að hafa ból
hefðar upp á jökultindi,
af því þar er ekkert skjól
uppi fyrir :|: frosti, snjó og vindi :|:
2. Kominn em eg hátt í hlíð,
hefðar þó mjög neðar tindi,
en þar golan ei er blíð,
öðrum hlýrra :|: blæs í dalnum vindi :|:
3. Því á engi mér til meins
maður virða, nema galinn,
þó mér bregði eg að eins
ofan til leika :|: niðr í gleðidalinn :|:
4. Skemmtið yður meður mér,
menn, sem búið þeim í dalnum;
stuttan tíma unnt mér er
með yður leika :|: hér í gleðisalnum :|:
5. Ef hér staddur einhver kann
okkar virða gleði að meini,
lífs og dauður húki hann
hefðar freðinn :|: uppi' á Guðnasteini :|: